Auðvelt hjá City í Úkraínu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
vísir/getty
Manchester City byrjaði nýtt tímabil í Meistaradeild Evrópu á þægilegum útisigri á Shakhtar Donetsk.

Riyad Mahrez kom Manchester City yfir á 24. mínútu leiksins þegar hann fylgdi eftir stangarskoti Ilkay Gundogan.

Gundogan tókst svo að skora sjálfur þegar líða tók á hálfeikinn og Mahrez lagði upp fyrir félaga sinn til þess að þakka fyrir fyrsta markið.

Snemma í seinni hálfleik var Gundogan hársbreidd frá því að bæta öðru marki sínu við en Andriy Pyatov varði. Donetsk náði ekki að hreinsa, boltinn féll fyrir Raheem Sterling sem setti hann í stöngina.

Eftir klukkutíma leik kom City boltanum í markið en það var dæmt af vegna rangstöðu. Þriðja markið kom loks á 76. mínútu þegar Gabriel Jesus náði að koma boltanum löglega í netið.

Leiknum lauk með þægilegum 3-0 sigri Englandsmeistaranna sem fara vel af stað í Meistaradeildinni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira