Viðskipti innlent

Nonna­bita lokað í mið­bænum

Atli Ísleifsson skrifar
Sveittur beikonbátur frá Nonnabita.
Sveittur beikonbátur frá Nonnabita. Nonnabiti
Skyndibitastaðurinn Nonnabiti í Hafnarstræti hefur lokað eftir 27 ára rekstur. Frá þessu er greint á Facebook-síðu staðarins.

Þar segir að eigendur hafi selt eignina. „Af því tilefni viljum við þakka ykkur viðskiptin og komurnar síðastliðin 27 ár.“

Nonnabiti hefur um árabil verið vinsæll áfangastaður meðal skemmtanaglaðra Íslendinga og oft síðasta stopp áður en haldið er heim eftir djammið.

Nonnabiti rekur einnig stað í Bæjarlind í Kópavogi og verður hann áfram starfandi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×