Innlent

Boðar áframhaldandi samráð í útlendingamálum

Kjartan Kjartansson skrifar
Frá ríkisráðsfundinum á Bessastöðum í dag.
Frá ríkisráðsfundinum á Bessastöðum í dag. Vísir
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir sagðist ekki hrædd við að takast á við erfið og viðkvæm mál sem dómsmálaráðherra þegar hún mætti til Bessastaða á sinn fyrsta ríkisráðsfund nú síðdegis. Boðaði hún áframhaldandi þverpólitísk samráð um útlendingamál. Hún tók við lyklavöldum í dómsmálaráðuneytinu eftir fundinn.

Spurð að því hvort að henni myndi fylgja meiri mildi í útlendingamálum þegar hún tæki við dómsmálaráðuneytinu svaraði Áslaug Arna því ekki beint. Sagðist hún ganga inn í ríkisstjórn með ákveðinn stjórnarsáttmála. Þingmannanefnd hafi verið skipuð til að ræða útlendingamál í víðara samhengi.

Þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi lengi farið með málaflokkinn byggðu núgildandi útlendingalög á störfum þverpólitískrar nefndar.

„Það hefur verið mikið samráð um þessi mál og ég mun halda því áfram,“ sagði Áslaug Arna.

Áslaug Arna er yngsti ráðherra lýðveldissögunnar og sá næstyngsti frá upphafi. Hún sagðist vera stolt af því og að það væri gott að vera fyrirmynd í þeim efnum. Mikilvægt væri að ríkisstjórnin væri eins fjölbreytt og samfélagið en benti hún jafnframt á að hún hefði mikla reynslu eftir að hafa stýrt tveimur stórum þingnefndum og verið í forystu Sjálfstæðisflokksins  í fjögur ár.

Hún var spurð út í gagnrýni sumra flokksfélaga hennar á að hún væri of ung.

„Ef það er eina gagnrýnin þá kvarta ég ekki,“ sagði Áslaug Arna.

Sagðist hún nálgast embættið af auðmýkt og tilhlökkun því hún vissi að mál ráðuneytisins snerti fólk.

„Þó að þau séu erfið er ég ekki hrædd við það heldur,“ sagði hún.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×