Fótbolti

Sjáðu mörk U21 árs strákanna gegn Lúxemborg

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Íslenska undir 21 árs landsliðið í fótbolta vann í dag öruggan sigur á Lúxemborg í undankeppni EM.

Leikur Íslands og Lúxemborg fór fram á Víkingsvellinum í Fossvogi og var sá fyrsti hjá íslenska liðinu í undankeppninni.

Sveinn Aron Guðjohnsen kom Íslandi yfir snemma í seinni hálfleik úr vítaspyrnu og Jón Dagur Þorsteinsson skoraði glæsilegt mark á 58. mínútu.

Willum Þór Willumsson tryggði svo öruggan sigur Íslands með þriðja markinu á 63. mínútu. Lokatölur urðu 3-0 fyrir Ísland.

Mörk Íslands í leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×