Makamál

Spurning vikunnar: Ertu kynferðislega fullnægð/ur í sambandinu þínu?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Hvað er það að vera kynferðislega fullnægður í sambandinu?
Hvað er það að vera kynferðislega fullnægður í sambandinu?
Að vera kynferðislega fullnægður í sambandinu sínu er mjög opin skilgreining sem slík. Fólk er oft með mjög ólíkar þarfir og væntingar til kynlífs og því misjafnt hvað það er sem gerir okkur kynferðislega fullnægð.

Kynlífsvandi para er oftast sagður stafa af samskiptaleysi þar sem fólk á erfitt með að tjá sig um kynlíf. Það eitt að geta talað um mismunandi þarfir og fantasíur getur því verið fyrsta skrefið í að losa um hömlur og komast nær því að verða fullnægður kynferðislega í sambandinu.

Fólk er eðlilega misopið og oft er hræðslan við að bera á borð langanir sínar það sem kemur í veg fyrir að makinn nái að veita þér það sem þú vilt. 

En við getum ekki ætlast til að að makinn lesi hugsanir og viti hvað það er sem við viljum. Það má því segja að grunnurinn að góðu kynlífi sé að geta talað og treyst maka sínum fyrir þörfum okkar og fantasíum.

Til að forðast misskilning er ekki verið að spyrja um fullnægingar sem slíka, heldur allar þær hliðar sem koma að því að gera okkur fullnægð í sambandinu kynferðislega. Það geta til dæmis verið atriði eins og tíðni, tjáning og upplifunin á kynlífinu. 

Athugið að spurning vikunnar er kynjaskipt og fólk beðið að svara eftir því hvort þú ert karl eða kona. 

Ertu kynferðislega fullnægð/ur í sambandinu þínu? 



Konur svara hér fyrir neðan: 


Karlar svara hér fyrir neðan: 


Tengdar fréttir

Þriðjungur hefur stundað kynlíf með fleiri en einum í einu

Í spurningu síðustu viku spurðum við að því hvort fólk hafi stundað kynlíf með fleiri en einum í einu. Að sænga hjá tveimur manneskjum eða fleiri í einu er eitt af algengum fantasíum en ætli það séu margir sem láti þessa fantasíu verða að veruleika?

Emojional: Brynja Dan, mamma númer eitt, tvö og tíu

Brynja Dan hefur komið víða við og kallar ekki allt ömmu sína þegar kemur að markaðsmálum. Brynja hefur haft í mörgu að snúast síðustu vikur en hún er einn eiganda Extraloppunnar í Smáralind sem opnaði núna í sumar. Makamál tóku létt spjall við Brynju á Facebook þar sem hún fékk að spreyta sig á því að svara einungis í formi emojis. (táknmynda)






Fleiri fréttir

Sjá meira


×