Segir viðbrögð bíógesta á Króknum ríma við sína upplifun Birgir Olgeirsson skrifar 21. ágúst 2019 18:03 Grímur Hákonarson, leikstjóri Héraðsins. Fréttablaðið/Anton Brink
Leikstjórinn Grímur Hákonarson var ánægður með bóndann úr Skagafirði sem var sá eini sem var viljugur til að tjá sig um efnistök Héraðsins eftir sýningu myndarinnar á Sauðárkróki á mánudag. Héraðið segir frá baráttu bónda gegn kaupfélaginu sem ræður ríkjum í Erpsfirði. Grímur hafði ætlað sér að gera heimildarmynd um Kaupfélag Skagfirðinga en þegar afar fáir voru til að tjá sig um málefni félagsins undir nafni ákvað Grímur að safna sögunum saman gera leikna mynd. Grímur segir viðbrögð bíógesta við viðtalsbeiðni fréttamanns Stöðvar 2 síðastliðið mánudagskvöld ríma við sína upplifun. „Þegar ég var þarna á sínum tíma var þetta mín upplifun. Fólk var til í að hitta mig og spjalla en ekki til í að koma fram opinberlega,“ segir Grímur.Ekki margir sem reiða sig ekki á Kaupfélagið Bóndinn úr Skagafirði sem veitti fréttamanni Stöðvar 2 viðtal heitir Margeir Björnsson. Hann sagði myndina lýsa Skagafirði nokkuð vel. „Hann allavega tekur undir það sem kemur fram í myndinni og eiginlega staðfestir að það sé byggt á sannleikanum, að þetta sé rétt sem kemur fram í myndinni, ég var ánægður með það,“ segir Grímur um viðbrögð Margeirs.Margeir Björnsson, bóndi í Skagafirði.Vísir/Tryggvi PállGrímur ræddi ekki við Margeir í aðdraganda myndarinnar en Grímur segir að það sé örugglega afar sjaldgæft í Skagafirði að einhver sem stundar landbúnað þar reiði sig ekki á Kaupfélagið. „Það held ég að séu ekki margir í hans sporum að reiða sig ekki á Kaupfélagið en samt búa þar,“ segir Grímur.Eina kaupfélagið sem enn er öflugt Spurður hvers vegna hann vildi upphaflega gera heimildarmynd um Kaupfélag Skagafjarðar svarar Grímur að Skagafjörðurinn hafi ákveðna sérstöðu. Grímur hefur gert heimildarmyndir samhliða leiknum myndum, þar á meðal Litlu Moskvu, en fannst góður efniviður í Skagafirðinum. „Þetta er eina Kaupfélagið sem er enn öflugt í dag eftir að sambandið fór á hausinn. Ég hef áhuga á samfélagsmálum og pólitík og fannst þetta áhugaverður efniviður í kvikmynd,“ segir Grímur. „Svo þróaðist þetta þannig að ég þurfti að gera leikna mynd því ég sá að það var ekki grundvöllur til að gera heimildarmynd. Það var ekki forsenda til að gera heimildarmynd, finna viðmælendur sem eru til í að segja frá. Ég fann að það var ekki mögulegt.Myndin ekki einhliða Íbúar í litlum samfélögum hafa oft það viðhorf að betra sé að halda gróðanum sem skapast í samfélaginu innan samfélagsins. Grímur segir það viðhorf að vissu leyti skiljanlegt og það komi mjög sterkt fram í myndinni. „Og myndin er ekki einhliða, Kaupfélagið fær að koma með sjónarmið sitt í myndinni. En það er aldrei gott þegar mikil völd safnast saman á fárra manna hendur.Grímur segir myndina enga áróðursmynd.„Samþjöppun valds er aldrei af hinu góða og það býður upp á spillingu. Þegar stjórnendur fjarlægjast umbjóðendur sína myndast gjá sem er ekki gott ástand. Það er bara klassískt, það er ekki bara í Skagafirði heldur á mörgum öðrum stöðum og getur alveg eins verið einkarekið fyrirtæki eða eins og samvinnufélag,“ segir Grímur.Á endanum er Héraðið skáldskapur Hann segist sjálfur ekki hafa heyrt í fólki í Skagafirði eftir að myndin var sýnd þar en hefur þó heyrt í fólki sem er hliðhollt Kaupfélagi Skagfirðinga og er ekki sátt. „Annars hafa viðtökurnar verið mjög góðar og flestir sem eg heg talað við eru sáttir. En eins og alltaf þá setur fólk út à ýmislegt og einhverjum finnst vera vegið að kaupfélaginu.“ Hann segir Héraðið hins vegar enga áróðursmynd og á endanum sé um skáldskap að ræða. „Þetta er byggt á sönnum sögum, en eins og Halldór Laxness, án þess að ég sé að líkja mér við hann, hann byggði bækur sínar á rannsóknarvinnu og heimildum, svo skáldaði hann í eyðurnar.“
Skagafjörður Tengdar fréttir Uppselt á fyrstu tvær sýningar Héraðsins á Sauðárkróki Mér finnst þessi mynd alls ekki leggjast illa í fólk, segir rekstrarstjóri Króksbíós. 19. ágúst 2019 12:56 Sá eini sem vildi í viðtal eftir sýningu Héraðsins á Sauðárkróki var bóndi sem aldrei hefur reitt sig á kaupfélagið Eini bíógesturinn sem gaf kost á viðtali eftir að kvikmyndin Héraðið var frumsýnd á Sauðárkróki í gær var eldri bóndi sem segist aldrei hafa þurft að reiða sig á Kaupfélag Skagfirðinga. 20. ágúst 2019 19:15 Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Fleiri fréttir Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Sjá meira
Uppselt á fyrstu tvær sýningar Héraðsins á Sauðárkróki Mér finnst þessi mynd alls ekki leggjast illa í fólk, segir rekstrarstjóri Króksbíós. 19. ágúst 2019 12:56
Sá eini sem vildi í viðtal eftir sýningu Héraðsins á Sauðárkróki var bóndi sem aldrei hefur reitt sig á kaupfélagið Eini bíógesturinn sem gaf kost á viðtali eftir að kvikmyndin Héraðið var frumsýnd á Sauðárkróki í gær var eldri bóndi sem segist aldrei hafa þurft að reiða sig á Kaupfélag Skagfirðinga. 20. ágúst 2019 19:15