Samstarf

101 kynnir Sambandið í Hörpu

101 Productions kynnir
Unnsteinn Manúel er meðal forsvarsmanna Sambandsins.
Unnsteinn Manúel er meðal forsvarsmanna Sambandsins.
101 Productions, sem rekur Útvarp 101 og hefur einnig vakið athygli fyrir framleiðslu sjónvarpsþátta, boðar til blaðamannafundar í Hörpu klukkan 09:30.

Kynnt verður vara sem nefnist 101 Sambandið en hægt er að kynna sér hana nánar á heimasíðunni sambandid.is.

Hægt er að horfa á fundinn hér fyrir neðan.

Klippa: 101 kynnir Sambandið í Hörpu

Um Sambandið

Sambandið veitir farsímaþjónustu rekna á kerfum Vodafone. Viðskiptavinir sem eru með númerið sitt hjá 101 Sambandinu hringja og senda SMS frítt, óháð kerfi. Allir viðskiptavinir sem færa númerið sitt yfir fá einnig 20 GB að gjöf frá Sambandinu. Viðskiptavinir geta svo valið um þrjár tegundir af gagnapökkum, annaðhvort sem stök eða mánaðarlega áfylling. Um er að ræða ódýrustu gagnapakkana á markaði í dag.

Eftirfarandi gagnapakkar eru í boði hjá Sambandinu:

● 10 GB á 1.990 kr

● 50 GB á 2.990 kr

● 100 GB á 4.990 kr

Hjá Sambandinu safnar þú upp gagnamagninu sem þú kaupir án takmarkana, þannig tapar þú ekki gagnamagninu þínu eins og hjá flestum öðrum símafyrirtækjum. Einnig geta viðskiptavinir millifært gagnamagn og þannig hjálpað vini í neyð, en það hefur aldrei áður verið mögulegt á íslenskum fjarskiptamarkaði. Viðskiptavinir geta svo boðið vinum sínum að koma í viðskipti og ef vinurinn færir svo númerið sitt yfir fá báðir aðilar 15 GB að gjöf.

Sambandið er einnig fríðindaklúbbur þar sem hægt er að nýta sér fjölmörg 2fyrir1 tilboð. Einnig verða reglulegir viðburðir sem viðskiptavinir í Sambandinu fá frímiða á. Allt þetta verður hægt að nálgast í appi sem hægt er að sækja undir heitinu "101 Sambandið" og er aðgengilegt í App store og Google Play store. Einungis tekur örfáar mínútur að flytja númer sitt yfir til Sambandsins og þurfa tilvonandi meðlimir aðeins að hafa Sambandsappið og símkort við höndina til þess.



Hvert eiga viðskiptavinir að leita ef þeir vilja vita meira?

Viðskiptavinir geta náð í appið "101 Sambandið" eða farið inn á sambandid.is. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar hjá þjónustufulltrúa í gegnum netspjall Sambandsins á Facebook Messenger.

Um 101 Productions:

101 Productions er rekstrarfélag Útvarps 101 auk þess að vera framleiðslufyrirtæki. Félagið er í eigu 101 Family sf. & Sýn hf. Félagið hefur frá stofnun einbeitt sér að miðlun menningarefnis og hverskyns starfsemi á sviði afþreyingar. 101 Sambandið er nýjasta verkefni fyrirtækisins og eðlileg þróun á vöruframboði þess.



Þessi kynning er unnin í samstarfi við 101 Productions.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×