Leikjavísir

Dusty 2-1 Ventus: Einhver óvæntustu úrslit í sögu Norðurlandamótsins

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Árangur Dusty er talinn einn sá óvæntasti í sögu Norðurlandamótsins í LoL.
Árangur Dusty er talinn einn sá óvæntasti í sögu Norðurlandamótsins í LoL. Vísir/DustyIceland
Dusty, annað tveggja íslenskra liða sem hóf keppni í Norðurlandamótinu í tölvuleiknum League of Legends (LoL) lagði í gær danska liðið Ventus Esports, sem eru fráfarandi Norðulandameistarar í LoL.

Liðin léku alls þrjá leiki og fór rimman 2-1 Dusty í vil. Lið Dusty samanstendur af þeim Mikael Degi Hallssyni, Arnari Snæland, Aroni Gabríel Guðmundssyni, Marteini Gíslasyni og Dananum Tobias Jensen. En sá síðastnefndi er eitt mesta efni Dana í leiknum og hefur vakið mikla athygli fyrir spilamennsku sína á mótinu og eru nokkur stærri lið með augastað á honum.

Í fréttatilkynningu frá Ásbirni Daníel Ásbjörnssyni, forstjóra Dusty, kemur fram að Ventus hafi byrjað viðureignina mun betur en okkar menn. Því hafi útlitið verið ansi svart fyrir Dusty. Leikur 2 haf hins vegar verið mun jafnari . Raunar var allt í járnum fyrstu 12 mínúturnar en Dusty seig fram úr undir lokin og sigraði. Staðan 1-1 og oddaleikur fram undan.

Þriðji leikurinn var einnig afar jafn en aftur tókst Dusty að kreista fram sigur í blálokin með frábærri spilamennsku, við mikinn fögnuð áhorfenda.





Með sigrinum hefur Dusty ekki aðeins tryggt sér miða í undanúrslitin heldur einnig væn peningaverðlaun. Liðið er þar að auki aðeins einum sigri frá því að tryggja sér þátttökurétt á EU Masters-mótinu. Mótið er það stærsta sinnar tegundar innan Evrópu. Þar er til mikils að vinna, en fyrstu verðlaun í mótinu telja tugi milljóna króna.

Sigur Dusty á Ventus kom mörgum gríðarlega á óvart. Leikjasíðan Lemondogs fjallaði meðal annars um úrslitin og kallaði þau óvæntasta sigur í sögu Norðurlandamótsins.

Leikmenn Dusty hafa eflaust fagnað sigrinum vel í gærkvöldi en alvara lífsins hefur síðan tekið við strax í morgun, þar sem undanúrslitarimman fer fram í kvöld. Þar mætir Dusty afar sterku liði Falkn frá Svíþjóð en liðið lagði Dusty örugglega í fyrsta leik deildarkeppninnar fyrr í sumar.

Sigurvegari þeirrar viðureignar leikur síðan til úrslita gegn sigurvegara úr rimmu danska liðsins Copenhagen Flames og sænska liðsins Team Final Tribe.

Leik Dusty og Falkn má fylgjast með í bienni útsendingu á Twitch-síðu Dreamhack, sem heldur mótið. Rimman hefst klukkan 19:00 í kvöld. Eins hefur verið blásið til áhorfsteitis í Háskólanum í Reykjavík, þar sem öllum er velkomið að mæta og fylgjast með.

Hægt er að fylgjast með liði Dusty á samfélagsmiðlum undir notendanafninu dustyiceland.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×