Þegar áskorun verður ráðgjöf Þorleifur Ágústsson og Þorleifur Eiríksson skrifar 29. júlí 2019 07:00 Á síðu Hafrannsókastofnunar (Hafró, hafogvatn.is) 19. júlí sl. mátti lesa áskorun til veiðifélaga og stangveiðimanna. Líklegt má telja að áskorunin hafi verið einskonar tilraun til ráðgjafar um stjórnun laxveiða í straumvötnum. Ekki er þó hægt að sjá út frá þessari áskorun að hér sé um sömu rannsóknastofnun að ræða og þá er veitt mjög ítarlega ráðgjöf er varða fiskveiðar og sem hefur síðast liðinn misseri haldið uppbyggingu fiskeldis í gíslingu með skýrslugerð um hættur sem fylgt geta eldi í sjó. Ennfremur er þessi áskorun áhugaverð í ljósi þess að í 5. grein laga um hlutverk sömu stofnunar segir orðrétt „ …Að treysta undirstöður vísindalegrar ráðgjafar um nýtingu og ræktun nytjastofna sjávar, áa og vatna“. Ekkert er þó sagt í lögum um að eitt skuli vega meira en annað og því má ljóst vera að nefnd áskorun er ansi marklítil og vart til þess fallin að kallast á við fyrrnefnda grein, en áskorunin hljóðar svo: „Þar sem ljóst er að laxagöngur eru litlar í sumar hvetur Hafrannsóknastofnun veiðifélög og stangveiðimenn til gæta hófsemi í veiði og að sleppa sem flestum löxum aftur eftir veiði. Þetta er mikilvægt til að hrygningarstofninn í haust verði eins sterkur og unnt er“. Það sem vekur upp spurningar er einmitt hvernig það megi vera að stofnunin beiti ekki fyrir sig betri vísindum, veiti ekki betri ráðgjöf í stað þess að byðja veiðimenn að sleppa fleiri fiskum svo að þeir geti þá vonandi veitt þá aftur sér til gamans. Svona eins og þegar komi að laxveiðum þá sé sú iðja yfir alla skynsemi hafin. Það er ljóst að laxveiðar (hér átt við um alla laxfiska) eru gríðarlega vinsælt sport og skila af sér miklum tekjum til þeirra sem selja veiðileyfi. Svo mikill áhugi er að virðist vera til staðar að erlendir auðmenn kaupa upp jarðir sem liggja að laxveiðiám í stórum stíl. Til að reyna að viðhalda nægum fiski í ánum hafa veiðifélög staðið að umfangsmikilli ræktun og sleppingum á seiðum í ár – en um það skal ekki fjallað hér. Þetta þýðir að sem flestum löxum af þeim sem veiðast, gjarnan eftir mikla baráttu veiðimanns við bráðina, sem svo á endanum er tekin úr sínu náttúrulega umhverfi til myndatöku, er svo sleppt. Allt í nafni dýraverndar, svo að laxinn fái getið af sér afkvæmi. Skoðum aðferðina „veiða-sleppa“ aðeins betur. Markmiðið er sem sagt að veiðimaðurinn fái notið baráttunnar við laxinn – snúa á hann með haganlega hnýttri flugu og etja svo við hann kappi þar til laxinn annaðhvort sleppur eða veiðimaðurinn nær honum á land, oft eftir langa og stranga baráttu líkt og margur veiðimaðurinn hefur lýst. Laxinn á endanum nær dauða en lífi af stressi og þreytu – en veiðimaðurinn brosir framan í myndavélina. Hér er ekkert verið að velta fyrir sér hver séu raunveruleg áhrif slíkrar meðferðar– hvorki á fiskinn sem einstakling né stofninn í ánni. Allt þetta, þrátt fyrir að fjölmargar vísindagreinar hafi fjallað nákvæmlega um það – hvaða áhrif slík meðferð hefur á laxinn – sem því miður endar oft með að laxinn drepst. Laxness hefði sennilega kallað þetta hundraðogellefstu meðferð á dýrum. En þegar kemur að umræðu um dýravelferð – þá má ekki ræða þetta. Í besta falli gleymist það. En skiptir þetta máli? Hafró hvetur jú til slíkrar meðferðar á löxum – og Hafró er jú sú stofnun sem leiðbeina á. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á að veiða-sleppa aðferðin veldur oft á tíðum varanlegum áhrifum. Laxinn verður stressaður og sem svo getur leitt af sér breytingar á atferli fiskanna, ekki síst hrygningaratferli. En skiptir það máli fyrir veiðimennina sjálfa ef fiskurinn lifir og nær að hrygna – fjölga sér? Svarið er einfallt. JÁ! Rannsóknir sýna nefninlega að laxinn, sem er óvitlaus, lærir að öngull veiðimannsins er slæmur. Ekki nóg með það, heldur sýna rannsóknir ennfremur að þessi lærdómur flyst yfir til annarra laxa sem þá sýna aukna „veiðifælni“. Niðurstaðan verður því sú að laxar læra hver af öðrum og niðurstaðan verður til þess að færri fiskar veiðast - . Niðurstaðan er því sú að áskorun Hafró er ekki til þess fallin að hjálpa veiðimönnum til að vernda laxinn – auka veiðar – heldur miðar að því að fleiri laxar skaðist við veiðar, fleiri laxar drepist og þeir sem lifi af verði «veiðifælnari» en ella. Ráðgjöfin snýst sem sagt upp í öndverðu sína. Réttilega er hinsvegar á það bent hjá Hafró að heimtur úr sjó hafa minnkað víða í Evrópu og ómögulegt er að vita hvað veldur. Ekki hefur tekist að finna einstakar ástæður enda er náttúran flókin og fjölmargar aðstæður geta legið að baki. Þetta er mikilvægt að undirstrika – ekki síst í þeirri herferð sem nú á sér stað gegn fiskeldi í sjó. Það er nefnilega svo að ekki hefur tekist að sýna fram á að fiskeldi sé sökudólgurinn í þessu sambandi. Sem dæmi um þetta má nefna hinn sögufræga lax, Vosso laxinn, í Noregi. Stórlaxar sem voru heimsfrægir en dóu nánast út sökum gríðarlegrar ofveiði í net í sjó. Eftir mikið uppbyggingarstarf sem kostað hefur yfir 200 miljónir norskra króna er niðurstaðan sú að verkefninu hefur verið hætt. Það voru einfaldlega engar heimtur úr hafi þrátt fyrir að tekist hafi að byggja upp góðan hrygningastofn. Þetta er gríðarlegt áfall. En undirstrikar það sem vísindamennirnir segja, náttúran er flókin og lífið í hafinu er lykilatriðið í lífsferli laxins. Hinsvegar er ljóst að slíkt uppbyggingarstarf er gríðarlega mikilvægt – ekki bara út frá vísindalegu sjónarmiði heldur einnig menningarlegu. Kannski mun Vosso laxinn braggast og stofninn stækka. En þangað til er hann verndaður. Bannað að veiða. Bannað að veiða og sleppa. Og snúum aftur sjónum okkar að Íslandi. Hví grípa menn þá ekki til sömu ráða á Íslandi líkt og Norðmenn hafa gert? Banna veiðar. Tímabundið eða alveg í einstökum ám? Hefja alvöru verndun, uppbyggingu sem mun tryggja íslenska laxinum bjarta framtíð. En það er langt í land – ekki síst þegar litið er til umræðunnar um villta laxinn - ástand áa, veiðitölur og stofnstærðir, en þá eru ávalt teknar með ár sem að mestu eða alveg byggja á sleppingum. Ár sem hafa engan eiginlegan stofn sem hrygnir í ánni. Þessar ár og ástand þeirra fer því algjörlega eftir dugnaði veiðirétthafa, sem með sleppingum stjórna því hvort fiskur er í ánni eður ei. Ágæt dæmi um slíkar ár eru Rangárnar og Breiðdalsá – ár sem eru ekkert annað en íslenskar hafbeitarár. Það er því algjör firra að telja þessar ár með og slíkar ár eiga ekki heima í umræðu um villtan íslenskan lax. Það þætti sjálfsagt saga til næsta bæjar ef áhugamenn um gullfiskaræktun krefðust þess að fiskarnir þeirra yrðu reiknaðir sem hluti af stofnstærð gullfiska í heiminum. Í stað þess að koma með «áskorun» sem í reynd vinnur gegn hagsmunum laxveiðimanna, svo ekki sé nú talað um laxins sjálfs og menningu þjóðar, ætti Hafró að taka virkan og ábyrgan þátt í stjórnun laxveiða í ám. Stjórna uppbyggingu íslenska laxastofnsins með því að beita sömu aðferðum og gert er með fiskistofna hafsins – takmarka eða banna veiðar. Með þessu móti væri Hafró að sinna hlutverki sínu.Dr. Þorleifur Ágústsson fiskalífeðlisfræðingur og Dr. Þorleifur Eiríksson dýrafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættum að endurræsa menntakerfið, byrjum að halda áfram Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson skrifar Skoðun Huldufólkið Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir skrifar Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun
Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun