Frosin augnablik og gamlir kunningja Þórarinn Þórarinsson skrifar 8. júlí 2019 06:00 Bjarni Þór Georgsson dressaði sig heldur betur upp fyrir opnunina hjá Jóni Óskari og toppaði sjálfan listamanninn sem er yfirleitt alltaf sá langflottasti.
Margt var um manninn og mikið fjör í Eyjum um helgina þegar hjónin Jón Óskar og Hulda Hákon opnuðu annars vegar einkasýningu Jóns í Eldheimum og samsýninguna Fjallið eina og önnur verk í Safnahúsinu. Jón Óskar segist í samtali við Fréttablaðið bera hlýjar og sterkar taugar til Eyja, enda er hann ættaður þaðan og þau Hulda dvelja þar mikið í leik og starfi. Bæði eru þau stór nöfn í íslenskum myndlistarheimi en Jón Óskar segir að þeim finnist Vestmannaeyjar þó síður en svo of litlar fyrir sýningarnar þeirra. „Maður er náttúrlega alltaf í höfuðborginni og mér fannst bara mjög kræsilegt að sýna hérna enda er ferðamannastraumurinn heilmikill. Það fer alveg gríðarlegur fjöldi í gegnum Eldheima þar sem einkasýningin mín er,“ segir Jón og bætir við að sýningin standi út september. „Þannig að mér finnst þetta bara frábært dæmi. Ég er líka búinn að vera hérna það lengi og mikið að mér finnst eiginlega hálfgerð þegnskylda að maður sýni fólki hérna það sem maður er að gera.“Plöstuð verk í Herjólfi Jón Óskar segir verkin á sýningunni unnin bæði í Eyjum og á vinnustofunni í Reykjavík. „Á báðum þessum sýningum er þetta oft dót sem ég fer með fram og til baka. Eitthvað sem ég byrja á hérna og klára heima eða öfugt.“ Jón Óskar á það til að leika sér á stórum strigum en hann segir verkin á sýningunum hafa hentað ágætlega í þessu ferli. „Það er voða einfalt mál að flytja þetta á milli. Maður setur bara Vitawrap-plast utan um þau og sendir með Herjólfi.“ Hulda segir að á samsýningunni ægi saman verkum á ýmsum vinnslustigum. Hún sýni afsteypur, mót og hluti sem hafa ekki orðið að neinu, í bland við fullsköpuð listaverk. Þar á meðal eru þrjú ný smáverk sem eru fjölfeldi og þar má finna Fjallið eina. „Jón Óskar sýnir eitt stórt verk sem er í vinnslu og tvö fullunnin. Þau voru unnin í samvinnu við schaefertíkina Heiðu Berlín III. Tíkin bjó til mótin. Gróf holur í fíngerða ösku Eyjafjallajökuls og Jón Óskar steypti í þær og fínpússaði.“Árni Snævarr, upplýsingafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum, gerði sér ferð til Eyja til þess að skoða list Huldu Hákon og Jóns Óskars. Á milli hans og Huldu er Kristín Jóhannsdóttir, forstöðumaður EldheimaGamlar hetjur Einkasýning Jóns Óskars er sölusýning en öðru máli gegnir um hans þátt í samsýningunni. „Á sýningu okkar Huldu sýni ég verk sem eru ekki til sölu enda er ég eiginlega að sýna þar hvernig ég vinn. Þetta eru sem sagt myndir sem eru hálfkláraðar og sumar verða kannski aldrei myndir. Ég veit það ekki. Þetta er svona vinnuferli og ég er að fikta við hina og þessa panela, stilla þeim upp saman og bara svona máta mig áfram.“ Jón Óskar bætir við að sig hafi alltaf langað til að sýna „svona hluti sem mér finnst vera mjög fallegir. Ég veit hins vegar að þetta er ekki eitthvað sem fólk myndi stökkva á, sko. Þetta er eins og uppkast að einhverju.“ Hann segir Huldu vera í svipuðum pælingum að einhverju leyti en hún sé ólíkt honum með fullkláruð verk til sölu. „Þannig að hennar ferli er meira heildstætt, frá upphafi til enda, á meðan mitt er meira bara svona frosið móment í vinnsluferli. Þetta eru eiginlega abstraksjónir á meðan á samsýningunni eru í og með svona gamlar hetjur, John Wayne og Ringo Starr og eitthvað. Þessar klisjur sem ég dreg alltaf á eftir mér.“ Jón Óskar segist ætíð standa vörð um sinn mann, Ringo, þegar heitir aðdáendur fara með fjórmenningana frá Liverpool í mannjöfnuð. „Að sjálfsögðu. Maður fer ekkert ofan af því. Hann er flottastur.“
Birtist í Fréttablaðinu Myndlist Vestmannaeyjar Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Lífið samstarf Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Fleiri fréttir Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Sjá meira