Keisarinn er ekki í neinu?… Gunnar H. Gunnarsson og Örn Sigurðsson skrifar 25. júní 2019 08:00 Opið bréf til Dags B. Eggertssonar Dóru Bjartar Guðjónsdóttur Þórdísar Lóu Þórhallsdóttur Sigurborgar Óskar Haraldsdóttur Katrínar Jakobsdóttur Bjarna Benediktssonar Sigurðar Inga Jóhannessonar Guðmundar I. Guðbrandssonar Reykjavíkurborg mun ekki ná markmiði sínu um 40% minni losun CO2 fyrir 2030 (m.v. 1990) nema gripið verði til róttækra aðgerða í þéttingu byggðar í Vatnsmýri. Án þéttingar þar mun ríkið ekki heldur ná sínum markmiðum nema með því að kosta til gríðarlegum viðbótar fjármunum. Tilefni þessa opna bréfs er rökstuddur grunur Samtaka um betri byggð (BB) um að ca. 99% líkur séu á því að borgarstjórn muni semja við ríkið um áframhaldandi flug í Vatnsmýri fram yfir árið 2030 gegn smávægilegri dúsu, réttmætu ríkisframlagi til samgangna á höfuðborgarsvæðinu. Í því skyni að auka líkurnar úr ca. 1% í 100% á því að þetta muni ekki verða teljum við hér upp helstu rökin gegn því að slíkur samningur verði gerður. Þannig færi borgarstjórn gegn meginhagsmunum Reykvíkinga og annarra landsmanna. Hún færi á svig við Aðalskipulag Reykjavíkur til 2030 og samkomulag borgar og ríkis frá 23.10. 2013 um að Vatnsmýrarflugvöllur hverfi árið 2022. Í þessu máli hefur núverandi meirihluti borgarstjórnar ekkert lýðræðislegt umboð. Málið var ekki á dagskrá í kosningum 2018. En Samtök um betri byggð hafa fullt umboð í málinu. Þau áttu langstærstan þátt í að kosningar unnust, sem haldnar voru að kröfu samtakanna 2001 um brotthvarf flugvallar úr Vatnsmýri árið 2016. Framlengd vera flugvallar í Vatnsmýri er ekki aðeins tilræði við þjóðarhag og alvarlegt brot gegn helstu hagsmunum Reykvíkinga, sem kusu hann burt 2001, heldur einnig illskiljanleg lítilsvirðing við sýn ungra Íslendinga, sem taka ógnina um hlýnun Jarðar alvarlega. Orð Hannesar Hafstein 1905 eru í fullu gildi 114 árum síðar. Efnislega sagði hann: Misvægi atkvæða mun skekkja alla hugsun, samræðu, ákvarðanir og aðgerðir til ómælds tjóns fyrir íslenska þjóð. Þessi orð rætast aftur og aftur. Vatnsmýri er verðmætasta byggingarsvæði Íslands, a.m.k. 300 milljarða (ma.) kr. virði. Með 5% ávöxtunarkröfu er tap ríkis og borgar amk. 15 ma. á ári eða 300 ma. á 20 árum auk vaxta og þjóðhagslegs taps vegna glataðra tækifæra og tjóns á sviði lýðheilsu, samfélags, menningar og reksturs borgar, atvinnuvega og heimila. Reykjavíkurborg getur tafarlaust krafið ríkið um lóðarleigu fyrir borgarlandið undir flugvellinum í Vatnsmýri. Fyrir hvert prósent væri ársleigan t.d. 2.000.000.000 kr. Þétt og blönduð miðborgarbyggð í Vatnsmýri og Gamli miðbærinn skapa saman NÝJA MIÐBORG. Ný skilyrði skapast t.d. fyrir öflugar og sjálfbærar almannasamgöngur, sem verða sjálfkrafa góður grunnur að hagkvæmum strætó eða svokallaðri BORGARLÍNU fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Hvergi er mögulegt að draga jafnhratt úr losun CO2 og í NÝRRI MIÐBORG í Vatnsmýri. Þessi minnkun losunar er hrein aukaafurð af besta valkosti í borgarskipulagi og kostar minna en ekki neitt. Líklega gætu a.m.k. 25.000 fjölskyldur í og við NÝJA MIÐBORG á Nesinu vestan Elliðaáa sparað einn bíl hver fjölskylda. Pendlun (akstur inn að morgni, út að kvöldi) er til komin vegna stjórnlausrar útþenslu byggðar af völdum flugvallar í Vatnsmýri og vegna mikils fjölda starfa umfram íbúa vestan til á Nesinu. Pendlun mun minnka því íbúar í NÝRRI MIÐBORG munu óhjákvæmilega taka yfir verulegan hluta þessara umframstarfa. Uppbygging í Vatnsmýri stöðvar stjórnlausa útþenslu borgarinnar í Kraganum, eykur framboð íbúða, stuðlar að lægri búsetukostnaði (húsnæði + akstur) og samgöngukostnaði. Akstursþörf dregst saman og kostnaður allra minnkar vegna aukinnar nándar heimila, vinnustaða, afþreyingar, þjónustu og menningar. Kostnaður við almannasamgöngur, t.d svokallaða BORGARLÍNU, minnkar m.a. vegna þess að leiðirnar úr úthverfunum að útvíkkuðum jaðri NÝRRAR MIÐBORGAR styttast. Gatnakerfið milli úthverfa og miðborgar víkkar ekki jafn mikið og ella þyrfti ef ekki er byggt í Vatnsmýri. Gatnakerfið vestan Kringlumýrarbrautar rýmkar mjög við það að skipta út flugvelli fyrir NÝJA MIÐBORG um leið og bílum fækkar hlutfallslega; rými fyrir Strætó vex að sama skapi. Mun meirihluti borgarstjórnar fórna 200 milljarða verðmæti Reykvíkinga og tækifærum og samlegðaráhrifum af NÝRRI MIÐBORG í Vatnsmýri fyrir sjálfsagt og réttmætt ríkisframlag til svokallaðrar BORGARLÍNU? Sé kostnaður t.d. 70 milljarðar kr. og framlag ríkisins 50% er hlutdeild Reykjavíkurborgar um 20 ma. og Kragans, sem fórnar engu, um 15 ma. Reykjavíkurborg mun ekki ná markmiðinu um 40% minni losun CO2 (miðað við 1990) fyrir 2030 nema með róttækri þéttingu byggðar í Vatnsmýri. Og ríkið verður af bestu leiðinni til að standa við skuldbindingar Íslendinga á þessu sviði. Þessi leið kostar minna en ekki neitt vegna þjóðhagslegrar arðsemi byggðar í Vatnsmýri. Að moka í staðinn ofan í skurði og rækta skóga kostar marga milljarða kr. Tíminn er naumur og framtíðin óviss. Þetta veit m.a. unga fólkið, sem kemur saman vikulega á Austurvelli og í miklum fjölda annarra borga um allan heim til að mótmæla dáðleysi valdhafa. F.h. framkvæmdastjórnar Samtaka um betri byggð (BB). Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Núll prósent skynsemi Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn Skoðun Þegar kvíðinn tekur völdin Sóley Dröfn Davíðsdóttir Skoðun Ljúgandi málpípa Sjálfstæðisflokksins Tómas Kristjánsson Skoðun Halldór 15.06.2024 Halldór Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Drasl Hafþór Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Vetur að vori - stuðningur eftir óveður Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Er þensla vegna íbúðauppbyggingar? Jónas Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Viðurkennum þjóðarmorð á Armenum Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Þegar kvíðinn tekur völdin Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Atvinnulífið og fíkniefnasalan Ólafur Kjartansson skrifar Skoðun Drasl Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Er lýðræðinu viðbjargandi? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Forsetapróf Auður Guðna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Aukin sala áfengis ógnar grundvallarmarkmiðum lýðheilsu Aðalsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Svik VG í jafnréttismálum Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun Ingólfur krítar liðugt Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Fáu spáð en vel fylgst með Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Armæða um íslenska tungu Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Það eru lög í landinu Líneik Anna Sævarsdóttir skrifar Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Úr buffi í klút Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar Skoðun Málsvari minksins Lárus Karl Arnbjarnarson skrifar Skoðun Skuldum við 17 þúsund íbúðir á höfuðborgarsvæðinu? Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Förum vel með byggingarvörur Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Gerum betur Kristín B. Jónsdóttir skrifar Skoðun Á tæpustu tungu Eiríkur Örn Norðdahl skrifar Skoðun Aðför að ungmennum (Í minningu Hamarsins) Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson skrifar Skoðun „Betur borgandi ferðamenn“ Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Brosum breitt Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar
Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun