Makamál

Spurning vikunnar: Hefur þú fengið senda óumbeðna mynd af kynfærum eða brjóstum?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Hefur þú fengið senda óumbeðna mynd af kynfærum?
Hefur þú fengið senda óumbeðna mynd af kynfærum?
Færst hefur í aukana að fólk sé að senda óumbeðnar og óviðeigandi myndir af kynfærum í gegnum samfélagsmiðla. Mikil umræða hefur skapast um þetta atferli sem virðist tengjast einhvers konar strípi og sýniþörf en oftar en ekki upplifir viðtakandinn þessar myndir sem áreiti eða jafnvel ofbeldi. 

Makamál vill kanna hvort kynið er líklegra til að senda svona myndir og hversu algengt það er. Athugið að verið er að spyrja um ÓUMBEÐNAR myndir. 



Spurning vikunnar er því þessi: 

Hefur þú fengið senda ÓUMBEÐNA mynd af kynfærum eða brjóstum?

Hægt er að svara spurningunni hér að neðan og verða niðurstöðurnar kynntar í Brennslunni á FM957 föstudaginn 21.júní um 08:00. 


Tengdar fréttir

Manstu þegar þú elskaðir mig?

Dóra Dúna, nemi við Ljósmyndaskólann í Reykjavík, auglýsir eftir fólki í verkefnið sitt "Rembember when you loved me“ eða Manstu þegar þú elskaðir mig. Verkefnið gengur út á það að mynda fyrrverandi pör og er tilgangurinn að heiðra ástina sem eitt sinn var.

Viltu gifast Birnir?

Birnir Sigurðarson er einn af okkar þekktustu röppurum en hann kemur úr Kópavogi eins og svo margir úr rappsenunni. Makamál fengu Birni í létt spjall á Facebook þar sem hann svaraði spurningum m.a um rómantík og daður í formi gifa.

Emojional: Svala Björgvins

Svölu Björgvins þarf vart að kynna fyrir landsmönnum en hún hefur verið í sviðsljósinu síðan hún var lítli stelpa þegar hún heillaði alla með kröftugri rödd sinni og sjarmerandi framkomu. Makamál tóku spjall við Svölu á Facebook og svaraði hún spurningum um ástina og lífið með emojis. Sjáum hversu emojional Svala er.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×