Hérna.. af hverju vissi ég ekki af þessu? Sigríður Karlsdóttir skrifar 5. júní 2019 08:30 Ég varð fyrir uppljómun í síðustu viku. Ég verð gjarnan fyrir uppljómun og verð þá eins og fjögurra ára barn að skoða froska í búri. Mér finnst ég þurfa að segja öllum frá. Í þetta sinn varð ég fyrir veraldlegri uppljómun. Uppljómun buddunnar og fjárhagsins. Ég vann ekki í genalottóinu hvað varðar tennur. Ég hef verið að kljást við meiriháttar tannvesen síðustu ár og hef ég þakkað máttarvöldum fyrir elskulega tannlækninn minn sem er vandvirkasti maður sem ég hef hitt. Ég er með tennur á við 55 ára gamlan reykingamann. Heilsuráðgjafinn sjálfur. Það er greinilega ekki allt sem sýnist. Ég uppgötvaði sem sé að ég get gert við tennurnar á mér út í útlöndum. Þið trúið ekki hvað ég ég er ánægð með þessa uppgötvun. Ég fŕétti af ferð til Budapest í gegnum vin minn og nágranna, Reyni. Ég ákvað að slá til þar sem kvíðahnúturinn yfir því að borga komandi reikninga var orðinn þéttur. Mig langar svo að segja ykkur frá reynslu minni. Því ég vona svo að aðrir í mínum sporum uppgötvi þessa gleði - er það hægt í tengslum við tannlækna?? Ég mætti með engar væntingar á eitt flottasta hótel sem ég hef verið á. AquaWorld hotel í Búdapest. Hreinlætið dásamlegt, herbergið svo fallegt og útsýnið bilað. Kannski er ég að misskilja eitthvað, en mér fannst þetta dásamlegt. Ég vaknaði daginn eftir og fór í dásamlegan morgunverð þar sem augað, lyktarskyn og bragðskyn mitt fékk að dansa. Síðan var mér beint að tannlæknastofunni. BUDAPEST KLINIKKEN. Hmm.. það er eitthvað svo skandinavískt og róandi. Á móti mér tekur Hjalti. Maður á sextugsaldri og með mastersgráðu í nærveru. Fyrir svona tannlækna-kvíðasjúkling eins og mig, var Hjalti himnasending. Róandi yfirbragðið, góðlátlegu augun og sefandi röddin um að þetta verði alltílagi, fyllti herbergið. Á móti mér taka líka fullt af ungverskum yndislegum klínikdömum sem taka allar í hendurnar á mér, ávarpa mig með nafni og segja mér með augunum að þetta er ekkert hættulegt. Ég var send inn í herbergi með tæknilegasta tannlæknatæki sem ég hef séð. Það átti víst að taka myndir af allri fortíð minni í gegnum tennurnar. Öll súkkulaðistykkin sæjust á þessari mynd. Það var ekki hægt að ljúga. Eftir það fékk ég að setjast til Dr. Sopiu sem sagði mér ýmislegt um tennurnar mínar. Sumt vissi ég, annað ekki. Hún setti upp allt sem þurfti að gera og prentaði það út á blað og í minningunni var broskarl á blaðinu. En það var örugglega fölsk minning, ég var bara svo glöð. Ég mátti svo bara fara upp á dásamlega hótelherbergið mitt og hugsa málið. Hvað vildi ég láta gera? Myndatakan var frí. Ég mætti bara henda mér upp í rúm og afþakka allt og fara bara í frí. Ég mátti líka gera við eina tönn, tvær eða allt settið. Ef ég varð eitthvað ringluð á hugtökum tannlæknanna, þá var þarna íslenskur ráðgjafi. Oddný. Algjör nagli og útskýrði fyrir mér á mannamáli hvað þetta þýðir og gætti þess að allt var eins og það átti að vera. Aldrei fékk ég á tilfinninguna að það hafi verið að reyna féfletta mig. Og er ég með mjög næman radar á féflettingar. Hjalti og Oddný voru með mér í liði. Ég ákvað að gera við allt. Tvær krónur (þið sem þekkið það hugtak) á Íslandi kosta 250.000 - 300.000 fer eftir tannlæknum og öðru. En það var það sem ég ætlaði að láta gera á Íslandi. Hef heyrt að það hafi farið yfir 300.000 sums staðar. Sel það ekki dýrara en ég keypti það. Ég þurfti að láta: Króna 3 tennur Rífa eina tönn Fá gervitönn þangað til implantið kemur Bæta við brotna framtönn. Ég fór í tvöfalda tannhreinsun í leiðinni. Ég borgaði 174.500 krónur íslenskar. Ég er ekki að grínast! (Sagt á innsoginu með frekar uppglennt augu) Og nú er besti parturinn eftir. Haldið ykkur! Á hótelinu er GEGGJAÐ Spa. Þannig ef þú ert að bíða eftir að komast að hjá tannlækni getur þú hent þér í einn kokteil á inniskónum og sloppnum. Finnskar gufur þar sem þú berar þig með öðrum fyrir þá sem fíla það. Heitir pottar, nuddpottar á heimsklassa, Allt frítt. Vatnsrennibrautagarður á stærð við höfuðstöðvar Landsbankans í byggingu við hótelið. Fyrir dekurdýrin þá kostar nudd innan við 5.000 krónur og plokkun og litun er á 700 krónur. Þar liffar þú bara og njóddar á meðan tannsmiðurinn smíðar krónurnar eða þú bíður eftir að kallað verði á þig. Nei sko, þið verðið bara að gúgla myndir til að trúa mér. Ég trúði þessu ekki sjálf. Ef kokteill í Spa-i róar ekki taugarnar gerir ekkert það. Stundum, þegar ég þurfti að bíða þá stökk ég 10 metra til hægri frá tannlæknastofunni og þá var ég komin inn í líkamsræktarstöð. Setti Metalica á og sippaði eins og brjálæðingur. Nema ef mér hafði verið gefið róandi þá kannski mögulega teygði ég bara á. Hvar er apótek? Spyr konan sem hefur margar ára reynslu af tannveseni. Sýklalyfin þú veist. Já, nei elskan - þú færð bara með þér ef þú þarft. Þau eru bara hér og sýndi mér pokann. Ég borgaði undir 100.000 fyrir flug og hótel í 7 daga. Ég fékk meira segja kampavín í welcome drink. Og tryggingu á tönnunum til margar ára í rassvasanum. Suma daga var enginn tannlæknatími. Þá rölti ég um í borginni og saug í mig ungverska menningu. Hótelið er 20 mín frá miðbænum og kostar 2.400 krónur með leigubíl þangað. Fyrir 270.000 sem jafngildir um það bil tveimur krónum á Íslandi fékk ég fullt af viðgerðum, vikufrí í æðislegri borg á frábæru hóteli. Ég vissi ekki að það væri hægt að hafa svona gaman í tannlæknaferðum. Og þvílík fagmennska hjá tannlæknunum! Ég hef svo háan standard eftir Sverri, tannlækninn minn - að ég kalla ekki allt ömmu mína á þessu sviði. Þið skiljið kannski núna af hverju mig langaði til að deila þessari uppljómun með ykkur. Mér finnst þetta svo klikkað! Ef þið eruð í sömu sporum og ég, þá getið þið bara kíkt á facebook síðu Budapest Klinikken og tékkað á þessu. Ég brosi allavega enn þá breytt með fínu tönnunum mínum og veifa tásunum með ungverska naglalakkinu. Hafið góðan dag! Ykkar SiggaHöfundur er lífsleiknikennari, heilsuráðgjafi og sérlegur áhugamaður um mannlegt eðli. Pistillinn birtist fyrst á Facebook-síðu höfundar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigríður Karlsdóttir Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar