Viðskipti innlent

Björgólfur Thor fjárfesti fyrir hálfan milljarð í skuldabréfaútboði WOW air

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Björgólfur Thor Björgólfsson.
Björgólfur Thor Björgólfsson. Fréttablaðið/GVA
Félag skráð í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar skráði sig fyrir þremur milljónum evra í skuldafjárútboði flugfélagsins WOW air sem haldið var í haust, tæplega 500 milljónum króna. Rétt rúmlega helmingur þeirra fjármuna sem söfnuðust í skuldafjárútboðinu komu frá einstaklingum eða fyrirtækjum sem tengdust flugfélaginu eða Skúla Mogensen, forstjóra félagsins, persónulega eða vegna viðskiptahagsmuna.

Þetta kemur fram í nýrri bók Stefáns Einars Stefánssonar, viðskiptaritstjóra Morgunblaðsins, sem kemur út í dag og fjallar um ris og fall flugfélagsins WOW air.  Greint er frá efni bókarinnar á vef mbl.is.



Skúli Mogensen reyndi hvað hann gat til að bjarga WOW frá gjaldþroti, án árangurs.vísir/vilhelm
Þar segir meðal annars að félag í eigu Margrétar Ásgeirsdóttur, fyrrverandi eiginkonu Skúla hafi tekið þátt í útboðinu og lagt til 1,5 milljónir evra.

Airbus fjárfesti einnig

Alls söfnuðust rétt rúmlega 50 milljónir evra í skuldafjárútboðinu síðastliðið haust sem auglýst var sem brúarfjármögnun fram að áformuðu frumútboði WOW air, en á þeim tíma sem útboðið var haldið hafði rekstarumhverfi WOW air versnað.

Í bók Stefáns Einars kemur fram að flugvélaleigufyrirætkin Avolon og ALC hafi tekið þátt í útboðinu, sem og flugvélaframleiðandinn Airbus, félagið Reliqiuim sem er í eigu Björgólfs Thors og S9 ehf., félag í eigu Margrétar.

Sjálfur fjárfesti Skúli fyrir fimm milljónir evra, Avolon skráði sig fyrir fimm milljónum, ALC fyrir 2,5 milljónum en Airbus fjárfesti einnig fyrir sömu upphæð. Þá er Arion banki sagður hafa fjárfest fyrir 4,3 milljónir evra, félag Margrétar fyrir 1,5 milljónir evra og REA ehf, móðurfélag Airport Associates sem sá um að þjónusta WOW air á Keflavíkurflugvelli, fjárfesti fyrir eina milljón evra.

WOW air notaði eingöngu Airbus vélar.Vísir/vilhelm
Í bókinni kemur fram að bandaríska eignastýringafyrirtækið Eaton Vance hafi verið stærsti fjárfestirinn í útboðinu, þrír vogunarsjóður á vegum félagsins hafi keypt skuldabréf fyrir samtals tíu milljónir evra, eða fimmtung af heildarumfangi skuldabréfaútboðsins.

Bókin, sem ber nafnið WOW - Ris og fall flugfélags, verður kynnt á hádegisfundi í Norræna húsinu í dag, þar sem höfundur fer yfir bókina auk þess sem að Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, flytur erindi um flugfélagið og áhrif þess á íslenska ferðaþjónustu.

Uppfært klukkan 10.00: Upphaflega stóð í fréttinni að félag í eigu Björgólfs Thors hafi skráð sig fyrir 3,5 milljörðum evra. Samkvæmt upplýsingum frá Stefáni Einari, höfundi bókarinnar, benda gögn hans til þess að um þrjár milljónir evra hafi verið að ræða. Fréttinni hefur verið breytt í samræmi við það


Tengdar fréttir

Skúli nálgast endamarkið

Fjárfestar voru í gær búnir að skrá sig fyrir um 45 milljónum evra í útboði WOW air. Stjórnendur félagsins fullvissir um að lágmarksstærð útboðsins verði náð.

Breiðþoturnar reyndust upphafið að falli WOW

WOW-ævintýrið var ótrúleg sjö ára rússibanareið. Ris félagsins var bratt, en einnig fall þess. Saga WOW var rakin í fréttum Stöðvar 2 á tveimur mínútum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×