Steinrennum loftslagsvandann Bergur Sigfússon og Edda Sif Aradótir Pind og Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir skrifa 7. maí 2019 13:00 Í fréttum RÚV þann 30. apríl sl. kom fram að losun á koldíoxíði hér á landi muni aukast um rúm 10 prósent ef starfsemi verður hafin á ný í kísilverksmiðjunni í Helguvík. Þá kemur fram í aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum að gert er ráð fyrir að losun frá stóriðju eigi eftir að aukast verulega fram til ársins 2030. Það er óásættanlegt að gert sé ráð fyrir aukinni losun hér á landi á tímum þegar helsta vá sem steðjar að okkur tengist gríðarlegri losun á koldíoxíði og þeim áhrifum sem sú losun hefur haft og mun hafa á loftslag á jörðinni. Nú er svo komið að árleg losun á heimsvísu er um 35 gígatonn - það er að segja 35 milljarðar tonna af koldíoxíði á ári hverju; meira en 1000 tonn á hverri sekúndu. Meðalhitinn á jörðinni hefur hækkað um um það bil eina gráðu á síðustu hundrað árum eða svo og við erum þegar farin að sjá afleiðingar þessarar hlýnunar í meiri öfgum í veðurfari, súrnun sjávar, bráðnun jökla svo eitthvað sé nefnt. Að öllu óbreyttu mun meðalhiti á jörðinni hafa hækkað um aðra gráðu til viðbótar um miðbik þessarar aldar. Áframhaldandi hlýnun mun hafa alvarlegar afleiðingar, meðal annars aukinn þurrk, aukin flóð og fleiri storma. Milljónir munu missa lífsviðurværi sitt og ekki eiga annarra kosta völ en að flýja heimkynni sín, sem aftur skapar spennu og eykur líkur á ófriði. Þegar hefur vistkerfum jarðar hrakað og er nú talið að allt að milljón tegundir lífvera séu í útrýmingarhættu. Einungis útdauði tegunda í kjölfar áreksturs loftsteins á jörðina þegar meðal annars risaeðlur dóu út er sambærilegur við þær hamfarir sem mannkynið er að valda jörðinni með gengdarlausri losun koldíoxíðs. Að halda þessari hlýnun í skefjum mun kosta gríðarlega fyrirhöfn en vera vel þess virði hvort sem horft er til fjárhagslegra, samfélagslegra eða umhverfislegra þátta. T.a.m. hefur ítrekað verið sýnt fram á það að kostnaðurinn við að aðlagast og takast á við loftslagsbreytingar sé umtalsvert meiri en kostnaðurinn sem felst í því að koma í veg fyrir þær. Föngun og binding á koldíoxíði Í desember 2015 komu leiðtogar heimsins saman í París og sammæltust um að hlýnun jarðar muni hafa alvarlegar afleiðingar - en jafnframt að samhent átak geti og muni skipta sköpum til að minnka afleiðingar þessarar hlýnunar á líf fólks og samfélagið í heild sinni. Parísarsáttmálinn leit dagsins ljós og í honum er skýrt kveðið á um að halda þessari hlýnun vel undir 2°C, og reyna með öllum ráðum að takmarka hana við eina og hálfa gráðu. Og svona lítur framtíðin út - leiðin að Parísarsáttmálanum í augum loftslagsnefndar sameinuðu þjóðanna; nú þurfum við að beygja af leið og halda í vegferð þar sem við þurfum á örskömmum tíma að minnka losun á koldíoxíði út í andrúmsloftið, og hætta allri losun um miðbik þessarar aldar. Hægt er að ná markmiðum Parísarsáttmálans með tækni sem nú þegar er til eða í þróun og til þess þurfum við ekki að reiða okkur á nýja tækni. Dæmi um slíka tækni sem talið er að muni spila stórt hlutverk er tækni til að fanga og binda koldíoxíð (e. carbon capture and storage, CCS). Þróun slíkrar tækni hófst þegar í lok áttunda áratugar síðustu aldar þegar upp komu hugmyndir um að fanga koldíoxíð úr útblæstri frá gashreinsistöðvum í Bandaríkjunum og dæla niður í jörðina í stað þess að sleppa út í andrúmsloftið. Undanfarna tvo áratugi hefur þessi tækni verið þróuð áfram til að draga úr koldíoxíðslosun orkuvera sem og sementsverksmiðja, ál- og stálvera svo dæmi séu tekin. Hreinsibúnaði til að fanga koldíoxíðið er skeytt við útblásturskerfi orku- og iðjuvera og getur verið hluti af hönnun nýs vers en einnig má með mismikilli fyrirhöfn bæta hreinsibúnaði aftan við framleiðslueiningar í rekstri. Í gegnum tíðina hefur aðaláhersla verið lögð á að binda koldíoxíð í setlögum, en jarðlög sem henta slíkri bindingu er ekki að finna á Íslandi. Hér á landi hefur þó verið þróuð ný tækni til kolefnisbindingar sem hlotið hefur mikla athygli, þar sem koldíoxíð er leyst í vatni og því svo dælt niður í basaltlög þar sem það binst í steindum - eða steinrennur. Tæknin, sem kölluð er CarbFix, hefur verið í þróun við Hellisheiðarvirkjun frá árinu 2007. Upphafleg hönnun Hellisheiðarvirkjunar gerði ekki ráð fyrir því að fanga koldíoxíð frá virkjuninni og var öllu gasi sleppt út í andrúmsloftið fyrstu rekstrarár hennar. Til að hægt væri að beita CarbFix tækninni þurfti því að breyta öllum vélasamstæðum virkjunarinnar. Virkjuninni var breytt í skrefum og síðan 2014 hefur föngun og niðurdæling farið stigvaxandi samfara þeim breytingum og uppbyggingu og nú er þriðjungi þess koldíoxíðs sem streymir um virkjunina eða um 12,000 tonnum dælt niður árlega undir merkjum CarbFix verkefnisins. Þessa aðferð mætti nýta til að binda koldíoxíð úr útblæstri hér á landi, meðal annars frá ál- og kísilverum. Að leysa loftslagsvandann Mergur málsins er sá að tæknin til að fanga og binda koldíoxíð frá iðnferlum líkt og þeim sem nú bera langmesta ábyrgð á losun á Íslandi, svo sem frá álverum og kísilverum, er nú þegar til. Það er því hægt að fara í aðgerðir til að minnka þessa losun verulega. Raunar verður Parísarmarkmiðunum ekki náð án þess að farið sé í stórtækar aðgerðir við kolefnisföngun og bindingu á heimsvísu, því þó að endurnýjanlegir orkugjafar myndu leysa orkuframleiðslu með jarðefnaeldsneyti alfarið af hólmi er ekki útlit fyrir það að heimsbyggðin muni hætta að reiða sig á ál, stál og sement í fyrirsjáanlegri framtíð. Það sem helst virðist standa í vegi fyrir því að þessi tækni sé nýtt á mun stærri skala er kostnaður - eins og staðan er í dag kostar það mun minna að losa koldíoxíð út í andrúmsloftið en að fanga það og binda. Í nýrri skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er lagt til að allt að 70 dollara kolefnisskattur sé settur á losun á koldíoxíði, enda sé það langárangursríkasta leiðin til að knýja fram þær breytingar sem lagt er upp með í Parísarsáttmálanum í baráttunni við loftslagsbreytingar. Þetta er svipað verð og sett hefur verið fram í rannsóknum á útblásturskerfum álvera. Ef þessi leið væri farin væri loftslagsvandinn úr sögunni. Slíkar aðgerðir krefjast þó mikils hugrekkis af hálfu stjórnvalda og atvinnulífs. Staðan er því sú að gert er ráð fyrir að losun Íslands aukist á næstu árum þrátt fyrir vitneskju okkar um afleiðingar þessarar losunar, þrátt fyrir það að tækni til að minnka þessa losun sé þegar til og þrátt fyrir hið mikla forskot sem Ísland hefur vegna nýtingar á endurnýjanlegri orku með aðeins lágmarks losun samanborið við önnur lönd. Sýnum samfélagslega ábyrgð og frumkvæði og byrjum strax að róa öllum árum saman að því að draga úr losun. Í þeirri vegverð er enginn undanskilinn. Tæknilega getum við það, fræðilega getum við það - það eina sem vantar er dugur og þor og vilji til að vera hluti af lausninni við stærstu áskorun samtímans. Höfundar eru kolefnisfargarar og stýra CarbFix-verkefninu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Edda Sif Aradóttir Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Skoðun Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun