Viðskipti innlent

Bandaríski fjárfestingasjóðurinn búinn að eignast stóran hlut í Icelandair

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Icelandair Group hefur að undanförnu verið að vinna úr talsverðum taprekstri.
Icelandair Group hefur að undanförnu verið að vinna úr talsverðum taprekstri. Vísir/Vilhelm
Bandaríski fjárfestingasjóðurinn PAR Capital Management hefur eignast 12,4 prósenta hlut í Icelandair Group eftir að kaup félagsins á 11,5 prósenta hlut í félaginu gengu í gegn í gær.

Þetta kemur fram í tilkynningu Icelandair til kauphallar þar sem tilkynnt er um breytingu á verulegum hluta atkvæðisréttar. Í byrjun apríl var tilkynnt að fjárfestingasjóðurinn, sem rekinn er í Boston, hafði gert bindandi samkomulag um kaup á 625 milljónum nýrra hluta í Icelandair Group fyrir 5,6 milljarða króna.

Kaupin voru háð samþykki hluthafafundar sem samþykkti þann 24. apríl að veita stjórn félagsins heimild til að þess að gefa út nýtt hlutafé vegna samkomulagsins við bandaríska fjárfestingasjóðinn. Eftir kaupin á PAR Capital Management alls 675 milljónir hluta í Icelandair Group, eða 12,42 prósent hlutafjár félagsins. PAR Investment Partners, sjóður á vegum PAR Capital heldur utan um eignarhlutinn í Icelandair Group.

United Airlines er eitt stærsta flugfélag Bandaríkjanna.Vísir/Getty
Þegar kaupin voru kynnt sagði Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, að koma bandaríska sjóðsins væri mikið styrkleikamerki fyrir Icelandair. Mikil reynsla og þekking væri að koma inn í hluthafahópinn með kaupunum.

Á meðal helstu eigna sjóðsins eru bandarísku flugfélögin United Airlines, Delta, Southwest Airlines, JetBlue og bókunarvefurinn Expedia.

Icelandair Group tapaði 6,7 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Hefur félagið leitað margvíslegra leiða til þess að snúa við taprekstrinum, meðal annars með því að selja stóran hlut í Icelandair Hotels, en talið er að viðræður um kaup malasíska fjárfestingafélagsins Berjaya Corporation á hótelkeðjunni séu á lokametrunum. Eigandi sjóðsins er hinn litríki eigandi breska knattspyrnufélagsins Cardiff City, Vincent Tan.

Það sem af er degi hafa hlutabréf Icelandair hækkað um 4,4 prósent og standa þau nú í 9,75. Samkvæmt samkomulaginu við PAR Capital voru kaup félagsins á hlutafé í Icelandair Group gerð á genginu 9,03 á hlut.


Tengdar fréttir

Kaup eftir þrot ekki tilviljun

Sveinn Þórarinsson, greinandi hjá Landsbankanum, segir að það sé líklega ekki tilviljun að bandaríska fjárfestingarfélagið PAR Capital Management hafi keypt 11,5 prósenta hlut í Icelandair Group skömmu eftir að WOW air varð gjaldþrota.

Söguleg erlend fjárfesting í Icelandair

Fyrirhuguð kaup bandaríska fjárfestingarsjóðsins PAR Capital Management á 11,5% hlut í Icelandair er meiri erlend fjárfesting en áður í sögu félagsins, að mati fyrrverandi forstjóra þess. Hann segir jákvætt að erlendir fjárfestar komi að rekstri íslenskra flugfélaga.

Mikið styrkleikamerki fyrir Icelandair

Bogi Nils segir þetta styrkja hluthafahópinn og auka fjölbreytnina í honum en PAR Capital hefur fjárfest mikið í bandarískum flugfélögum og ferðaþjónustufyrirtækjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×