Viðskipti erlent

Geimfar SpaceX ætlað mönnuðum geimferðum virðist hafa sprungið í tætlur

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Appelsínugulan reyk lagði frá prófunarsvæði SpaceX.
Appelsínugulan reyk lagði frá prófunarsvæði SpaceX. AP/Craig Bailey
Geimfar SpaceX, sem til stendur að nota til að skjóta mönnum út í geim, virðist hafa sprungið í tætlur við prófanir í Flórída á laugardaginn. Geimfarið, sem nefnist Crew Dragon, hefur verið prófað á ýmsa vegu að undanförnu en óvissa ríkir nú um hvernig SpaceX mun bregðast við atvikinu.

Tilkynnt var á laugardaginn að geimfarið hafi lent í„fráviki“við reglubundna prófun. Lítið annað var gefið upp utan þess að enginn hafi slasast. Miðað við myndband sem lekið var á netið, og sjá má hér að neðan, virðist frávikið hafa verið sprenging.

Hvorki SpaceX né NASA, Geimferðastofnun Bandaríkjanna, hafa staðfest að geimfarið hafi sprungið né hefur fengist staðfest að myndbandið sé ekta.Á vef tæknisíðunnar ArsTechnicasegir hins vegar að efni myndbandsins rími við frásagnir heimildarmanna síðunnar af atvikinu.

Sjá mátti myndir af appelsínugulum reyk stíga upp frá prófunarsvæði SpaceX á Canaveral-höfða í Bandaríkjunum. Samkvæmt heimildum ArsTechnica var prófunin á laugardaginn hluti af undirbúningi fyrir næsta stig prófunar geimfarsins sem áætluð er í sumar. Þá á að prófa hvort að geimfarið getið skotið sér frá eldflauginni sem flýgur með það út í geim, komi upp einhver vandræði með eldflaugina sjálfa.

Geimfarið sem var í prófunum er það sama og flogið var til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar og til baka í síðasta mánuði. Var það fyrsta tilraunaflug Crew Dragon.

Þróun Crew Dragon er hluti af samningi SpaceX við NASA um mannaðar geimferðir auk þess sem að SpaceX hyggst sjálft hefja mannaðar geimferðir. Stefnt var að því að fyrsta mannaða geimferðin á vegum NASA með Crew Dragon yrði í október. Ljóst er að sprengingin mun setja strik í reikninginn og líklegt að geimfarar á vegum NASA ferðist ekki út í geim í Crew Dragon geimfari Space X fyrr en á næsta ári.


Tengdar fréttir

SpaceX tekur stórt skref í átt að mönnuðum geimferðum

Til stendur að skjóta Crew Dragon geimfari fyrirtækisins á loft frá Flórída í fyrramálið. Farið verður ekki mannað þar sem að um tilraunaskot er að ræða en því verður þó flogið til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar og þar mun farið tengjast geimstöðinni.

NASA hefur áhyggjur af þróun geimfara SpaceX og Boeing

Útlit er fyrir að frekari tafir gætu orðið á því að Bandaríkin geti sent menn út í geim en það hefur ekki verið gert frá Bandaríkjunum síðan geimskutlurnar voru teknar úr notkun árið 2011.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×