Skoðun

3. orkupakki ESB, kvótinn og umræðan

Grétar Mar Jónsson skrifar
Frjálslyndi flokkurinn mótmælir ákvörðun stjórnvalda um að lögleiða 3. orkupakkann og að Ísland verði hluti af innri raforkumarkaði ESB. Ísland, eyja í Norðurhöfum, er ekki tengd eða hluti af innra raforkumarkaði meginlands Evrópu.

Kolefnalaus raforka mun skipta sköpum fyrir velmegun á Íslandi í framtíðinni. Með innleiðingu 3. orkupakkans afsalar Ísland sér ákvörðunarvaldi yfir mestu náttúruauðlind sinni í hendur ESB og Ísland mun ekki hafa ákvörðunarvald um aðgang erlendra aðila að Íslandshluta raforkumarkaðarins.

ESB-lög munu ráða, ekki íslensk,og fyrirvarar um annað munu ekki halda gegn ofurvaldi Brusselreglna. Sæstrengur mun lúta ESB-reglum. Stjórnvöld gæta ekki hagsmuna Íslands um helstu auðlind þjóðarinnar og hræðslan við Brusselvaldið og ímyndaðar afleiðingar rekur íslensk stjórnvöld áfram. Stjórnvöld hafa ekki bent Brussel á að líta á sjókort og hnattstöðu Íslands í málinu en skýla sér á bak við álit fræðimanna við þessa stórpólitísku ákvörðun. Af er sem áður var á tímum þroskastríða.

Innleiðing 3. orkupakkans færir orkuauðlindir landsins nær erlendum fjárfestum án aðkomu Íslands eða tillits til íslenskra almannahagsmuna. Með kvótann gerðist þetta í skrefum, nú er það með pökkum 3, 4, 5 og 6. Erlendir aðilar hafa þegar fjárfest í íslenskum orkufyrirtækjum, að ógleymdum uppkaupum á íslensku landi án nokkurrar mótstöðu stjórnvalda.

Fiskiveiðiauðlindin var færð örfáum útgerðarmönnun með tilheyrandi hruni sjávarbyggða í landinu. Í framtíðinni gæti orkuauðlind Íslendinga orðið að stórum hluta í höndum innlendra og erlendra fjárfesta, til hagsbóta fyrir þá en ekki íslenskt samfélag með augljósum afleiðingum fyrir byggð í öllu landinu. Því sem sérhagsmunaöflum tókst með kvótakerfinu ætla núverandi stjórnvöld að leggja grunninn að með 3. orkupakkanum frá ESB.

Kvótakerfið hefur byggt á því að stjórnmálamenn hafa getað skýlt sér á bak við fræðimenn, bæði hvað varðar bókhald og lífríki. Sjávarbyggðir landsins hafa ekki verið hluti af þeirri fræðiformúlu. Kvótaflokkarnir hafa verið dyggilega studdir af einnarskoðunarkerfi sem þeir hafa búið til með Ríkisútvarpið og dagblöðin tvö fremst í flokki. Vel rökstuddum tillögum um úrbætur er ekki svarað og þær jaðarsettar, slík er samfélagsumræðan.

Nú síðast tillögur um frjálsar innfjarðaveiðar sem byggja á líffræði fjarðanna. (Sjá FTI.is 26.01.19) Sama er varðandi 3. orkupakkann. Íslenskt fræðimannasamfélag er hluti af embættismannakerfi landsins. Þegar Ísland fær dóma í mannréttindamálum erlendis kalla stjórnmálaleiðtogar eftir hjálp erlendra fræðimanna þegar heimatilbúni einnarskoðunarrétttrúnaðurinn býður hnekki.

Verkalýðshreyfingin bjó við slíkan áróður fjölmiðla og innlendra fræðimanna í aðdraganda þeirra kjarasamninga sem nú eru í höfn og hafði sigur engu að síður. Baráttan gegn 3. orkupakkanum er sama eðlis enda barátta fyrir sjálfstæði þjóðarinnar.




Skoðun

Skoðun

Al­einn í heiminum?

Lukka Sigurðardóttir,Katrín Harðardóttir ,Margrét Kristín Blöndal skrifar

Sjá meira


×