Lífið

Duran Duran á leið til Íslands

Birgir Olgeirsson skrifar
Simon le Bon og John Taylor.
Simon le Bon og John Taylor. Vísir/Vilhelm

Hljómsveitin Duran Duran heldur tónleika í Laugardalshöll þann 25. júní næstkomandi. Miðasala á tónleikana mun hefjast klukkan 10 að morgni, miðvikudaginn 24. apríl.

Meðlimir hljómsveitarinnar snúa aftur eftir 14 ára fjarveru til að gleðja fjölmarga aðdáendur sína hér á landi sem margir voru viðstaddir er hljómsveitin hélt afar eftirminnilega tónleika árið 2005 í Egilshöll.



„Ef tónleikarnir sem við héldum á Íslandi árið 2005 gefa einhverja hugmynd um tónleikana 25. Júní i Laugardalshöll, þá stefna þeir í að verða stórkostleg skemmtun og frábær upplifun.  Ég hlakka til að vaka alla nóttina eins og ég gerði síðast,“ segir söngvarinn Simon Le Bon í tilkynningunni um tónleikana. 

Duran Duran er án efa ein sögufrægasta hljómsveit popptónlistarinnar.  Ferill hennar spannar fjóra áratugi og hefur hljómsveitin selt yfir 100 milljónir platna, unnið til tveggja Grammy verðlauna, tveggja Brit verðlauna, hlotið sjö sinnum Lifetime Achievement verðlaunin auk fjölmargra annarra viðurkenninga.  Hljómsveitin reis hratt upp á stjörnuhimininn og varð á örskotsstundu þekkt um allan heim.

Þrátt fyrir skjótan frama á sínum tíma hefur Duran Duran sýnt það margoft að tónlist þeirra er tímalaus.  Reglulega hefur hún samið og gefið út ný lög við frábærar undirtektir aðdáenda sinna.  Nálgun þeirra við að bræða saman listir, tísku, tækni og popptónlist hefur skapað þeim þann sess að vera ávallt á undan sinni samtíð og  ber hljómsveitin engin merki þess að hún sé að hægja á sér. 

Á milli einstaka sérvalinna tónleika á þessu ári, hefur hljómsveitin hafið upptökur á næstu plötu sinni samhliða fjölmörgum sérverkefnum til þess að fagna 40 ára samstarfi.

Tvö verðsvæði verða í boði:

Svæði A, verð kr. 18.900

Svæði B, verð kr. 14.900 

Höllin opnar kl 18 og Duran Duran stígur á svið kl. 20:15






Fleiri fréttir

Sjá meira


×