Sporðaköst byrja í kvöld á Stöð 2 Karl Lúðvíksson skrifar 16. apríl 2019 08:22 Rabbi og Jonni við tökur á þættinum í Miðfjarðará Mynd: Eggert Skúlason
Frá því að það fréttist að ný sería af Sporðaköstum sé væntanleg hafa veiðimenn beðið með mikilli eftirvæntingu eftir þáttunum. Nú er biðin á enda því þættirnir hefja göngu sína á Stöð 2 í kvöld og fyrsti þátturinn tekinn upp í Miðfjarðará. Í öðrum þáttum í nýju seríunni voru meðal annars veiddar ránbleikjur í Hafralóni, ágústveiði í Laxá í Dölum, bleikja og urriða í Köldukvísl og svo var markmið að veiða 20 punda lax í Víðidalsá, en það var líklega valið vitlaust ár til að ná því markmiði, og lokaþátturinn er svo í Selá í Vesturdalsá en þar er veitt með James Ratcliffe. "Heyri mikla spennu hjá veiðimönnum. Vissulega er mikil pressa en ég er mjög ánægður með þáttinn í kvöld og veit hann er veisla fyrir óþolinmóða veiðimenn sem bíða óþreyjufullir eftir veiðinni" sagði Eggert Skúlason þegar við heyrðum í honum. Fyrir þá sem vilja rifja upp gömlu þættina þá eru 22 gamlir Sporðakastaþættir komnir inn á Stöð 2 Maraþon. Þessir þættir voru teknir upp á árunum 1993 - 1999. Þættirnir voru á sínum tíma sýndir á Stöð 2 og hluti af þeim var gefinn út á VHS - spólum. Eitthvað af þessu efni hefur verið hægt að nálgast á Youtube eða einhverjum deilingarsíðum en í ákaflega misjöfnum gæðum. Þessir þættir eru í eins góðum gæðum og tækni á síðustu öld leyfir. Þegar þeir verða komnir í sýningu verður farið yfir þættina á Facebooksíðu Sporðakasta og þar verður fjallað um hvaða efni þetta er og hverjir koma við sögu. Þú getur skoðað sýnishorn af þáttunum hér.
Mest lesið 19 laxa dagur í Jöklu Veiði Mjög gott í Langá Veiði Litlar breytingar á listanum í veiðiánum Veiði Sala veiðileyfa mjög góð hjá Hreggnasa Veiði 30 laxar á tvær stangir í síðasta holli Veiði Töluvert líf í Gljúfurá í Borgarfirði Veiði Bleikjuveiðin búin að vera fín við Ásgarð Veiði 11 ára 20 punda sjóbirtingur Veiði Veiðin ekki búin í Elliðavatni Veiði Haustveiðin góð í Ytri Rangá Veiði