Björgólfur sagði að það væri ósköp eðlilegt að menn verði svartsýnir vegna stöðunnar. „En ég held að myndin þurfi ekki að vera svona biksvört,“ sagði Björgólfur.
Hann sagði það koma sér á óvart hversu mikill taprekstur var á WOW air í fyrra. Ef þær tölur væru réttar, að WOW air hafi tapað 22 milljörðum árið 2018, þá þýði það að flugfélagið tapaði 6.300 krónum á hvern farþega miðað við að það flutti 3,5 milljónir farþega í fyrra.
Hugsi vegna eftirlitsaðila
Björgólfur sagðist vera hugsi yfir hlutverki eftirlitsaðila í flugrekstri á Íslandi og nefndi þar Isavia, sem er rekstraraðila allra flugvalla á Íslandi, sérstaklega. Hann tók dæmi af því að Isavia hefði kyrrsett flugvél Flugfélagsins Ernis á Reykjavíkurflugvelli. Sagði Björgólfur að Ernir velti um tveimur milljörðum á ári og skuldaði mögulega eitthvað innan við 100 milljónir króna. Fjölmiðlar hafa greint frá því að skuld WOW air við Isavia standi í tveimur milljörðum króna.
Áhrifin nú þegar komin fram
Björgólfur sagði að áhrifin verði mikil ef WOW air fer í þrot en í hans huga hafa þau nú þegar komið fram. WOW air hefur fækkað mjög í flota sínum, fór niður í níu vélar í gær.„Við megum ekki vera í því að mála það svarta mynd fyrir fólkið í landinu að það sé allt ómögulegt og djöfullegt,“ sagði Björgólfur og nefndi að Íslendingar hefðu ávallt tækifæri til að vinna úr stöðunni og gera betur. Eftir hrunið hafi þjóðin farið í sóknargír og það sé hægt að gera aftur.

Hann velti því einnig upp hvort að sá markaður sem WOW air starfaði á væri í raun sjálfbær. Þá spurði hann einnig hvort það yrði svo slæmt ef að fjöldi ferðamanna hér á landi færi niður í það sem hann var árið 2017. Hann efast um að áhrifin muni vara til lengri tíma.
Staðan önnur hefði verið skorist fyrr í leikinn
Björgólfur sagðist telja að staða WOW air væri betri í dag ef Samgöngustofa hefði skorist fyrr í leikinn. Hann sagði það vera hlutverk stofnunarinnar, í því felist ákveðin neytendavernd.Þá sagði Björgólfur að uppi hefðu verið hugmyndir um að íslenska ríkinu bæri skylda til að koma Íslendingum aftur til landsins ef þeir verða strandaglópar úti í heimi vegna þrots flugfélags.

Stundum þurfi að opna Pandóruboxið
Hann sagðist hafa verið efins um hvort að hann ætti að ræða þessa stöðu sem upp er komin því hún sé sannarlega viðkvæma. Bætti hann þó við að þegar staðan væri viðkvæm þurfi að opna Pandóruboxið og ræða málin opinskátt.Taldi hann skýrslu Reykjavík Economics um áhrifin af falli WOW, þar sem talað er um að 4.000 manns missi vinnuna, ekki rétta. Sagði Björgólfur að skýrslan væri pöntuð af WOW air og niðurstaðan í samræmi við það.
Sagði Björgólfur að ef íslenski flugmarkaðurinn væri sjálfbær þá fyllist hann upp af öðrum flugfélögum. Wizz Air, sem er í eigu Indigo, hafi bætt við sig á Íslandi og sagði Björgólfur að markaðurinn leiti jafnvægis og til þess þurfi hann að vera sjálfbær.
Skaut á Skúla
Skaut Björgólfur svolítið á Skúla Mogensen, forstjóra WOW air, með því að segja að það þýði ekki að reka lággjaldaflugfélag en vera það síðan ekki í raun og veru.
Aðspurður sagði Björgólfur að ekki væri markaður fyrir tvö flugfélög á Íslandi sem sinna bara utanlandsferðum Íslendinga. Hins vegar sé staðan þannig að 80 til 85 prósent af viðskiptavinum Icelandair komi erlendis frá og því sé það risa markaður.
Hann sagði að stjórnendur flugfélaga ættu fyrst og fremst að einbeita sér að því að bæta lífskjör og ekki ætti að reyna að búa til lífsstíl á fölskum forsendum.
„Það verður að vera grundvöllur fyrir rekstri,“ sagði Björgólfur.
10 milljarða lán „piece of cake“
Gunnlaugur Helgason, annar af þáttastjórnendum Bítisins, spurði Björgólf út í lán sem Icelandair fékk nýverið frá Landsbankanum, sem er í eigu íslenska ríkisins, upp á 10 milljarða króna.Sagði Gunnlaugur að því hefði verið haldið fram að staða Icelandair sé betri en WOW því Icelandair hafi verið „pínulítið“ ríkisstyrkt.

Árið 2001, eftir árásarnir á Tvíburaturnanna í Bandaríkjunum, komu nánast öll ríki heimsins að rekstri flugfélaga með því að veita ríkisábyrgð á tryggingapakka þeirra.
Sagði Björgólfur að mýtan um ríkisstyrk til Icelandair væri liðin tíð. Sú staða væri ekki lengur fyrir hendi.
„Icelandair er ekki ríkisstyrkt félag og hefur ekki verið. Það er búinn að vera sjálfbær rekstur þar,“ sagði Björgólfur. Icelandair væri í góðri stöðu og tíu milljarða króna lán frá Landsbankanum væri „piece of cake“ fyrir Icelandair.
Þurfi betur borgandi ferðamenn
Ræddu þáttastjórnendur og Björgólfur að 29 flugfélög hefði flogið hingað til lands í fyrra og búist við um 26 í ár. Hann sagði að ferðamannastraumurinn myndi halda áfram með þessum félögum en spurningin sem stæði eftir væri hvort að sá hópur sem kom til landsins með WOW air væri að hverfa því WOW air hefði boðið flugfargjöld á of lágu verði sem varð þess valdandi að flugfélagið gat ekki staðið við skuldbindingar sínar.
Verulega góð sóknarfæri væru í sjónmáli og sagði Björgólfur að það væri óskandi að stéttarfélög og atvinnurekendur tækju tillit til þess við samningaborðið.
„Af því gefnu að menn komist að skynsamlegri niðurstöðu finnst mér vera glansandi bjart framundan.“
Simpansi hefði rekið flugfélag með hagnaði 2015
Hann sagðist telja að krónan þurfi að veikjast því Íslendingar lifi á útlendingum. Ferðamaðurinn hefði hins vegar haldið að sér höndum vegna gengi krónunnar og það sé ekki óeðlilegt að gengið sæki í það sem útlendingurinn geti lifað á og Íslendingar aðlagi sig að því. Það sé gömul saga og ný.Var Björgólfur spurður hvort að staða WOW væri betri í dag hefði félagið staldrað við árið 2017 og til dæmis ekki hafið áætlunarflug til Indlands.

Icelandair hafði skoðað flug til Indlands en kostnaðurinn var einfaldlega of mikill. Hann taldi Indlands-áætlun WOW engan blóraböggul þegar kemur að rekstrarvandræðum WOW þó svo að félagið hefði lagt mikla fjárfestingu í það.