Formúla 1

Upphitun: Hörkuslagur um öll sæti

Bragi Þórðarson skrifar
Hinn reynslumikli Kimi Raikkonen keppir fyrir Alfa Romeo.
Hinn reynslumikli Kimi Raikkonen keppir fyrir Alfa Romeo. vísir/getty
Nú þegar aðeins nokkrir dagar eru í fyrsta kappakstur tímabilsins höldum við áfram að fjalla um þau lið etja munu kappi í sumar.

Ljóst er frá fyrstu prófunum að slagurinn verður mjög harður í ár og verður ómögulegt að spá fyrir um úrslit, sérstaklega í slagnum um neðri sætin.

Alfa Romeo

Ökumenn: Kimi Raikkonen og Antonio Giovinazzi

Vél: Ferrari

Stigafjöldi árið 2018: 48

Alfa Romeo snýr aftur sem bílasmiður í Formúlu 1 í ár, en ítalski bílaframleiðandinn keypti Sauber liðið í vetur.

Rétt eins og Williams hefur liðið skipt út báðum ökuþórum sínum. Það var mikill fengur fyrir liðið að fá reynsluboltann Kimi Raikkonen frá Ferrari í skiptum fyrir Charles Leclerc. Finninn á eftir að geta aðstoðað liðið mikið með þróunina á nýja bílnum og Antonio Giovinazzi getur verið virkilega sáttur með að fá ráð frá 39 ára reynsluboltanum.

Alfa Romeo C38 bíllinn var sjötti hraðasti bíllinn í prófunum á Spáni fyrir tímabilið. Það lofar góðu fyrir lið sem ætlar að reyna bæta sig frá síðastliðnu ári er liðið lenti í áttunda sæti bílasmiða.

Sergio Perez keyrir á þessum glæsilega bíl.vísir/getty
Racing Point

Ökumenn: Sergio Perez og Lance Stroll

Vél: Mercedes

Stigafjöldi árið 2018: 52

Force India liðið fór á hausinn eftir hálft tímabil í fyrra og úr varð Racing Point. Þrátt fyrir að liðið byrjaði einungis að safna stigum eftir belgíska kappaksturinn í fyrra náði það þó sjöunda sæti í keppni bílasmiða.

Útlitið er þó ekki jafn gott í ár ef marka má tíma úr prófunum. Racing Point bílarnir enduðu í 14. og 17. sæti í prófununum á Katalóníu brautinni á Spáni.

Mexíkóbúinn Sergio Perez heldur sæti sínu í liðinu en nýr liðsfélagi hans er Lance Stroll. Það lá alltaf í loftinu að Stroll fengi hitt sætið þar sem faðir hans keypti liðið síðasta sumar.

Carlos Sainz er einn ökuþóra McLaren.vísir/getty
McLaren

Ökumenn: Carlos Sainz og Lando Norris

Vél: Renault

Stigafjöldi árið 2018: 62

Miklar sviptingar hafa verið á ökuþóramarkaðnum í vetur og er McLaren enn eitt liðið sem mætir til leiks með tvo nýja ökumenn. Liðið fékk Carlos Sainz frá Renault og liðsfélagi hans verður hinn 19 ára Lando Norris.

Norris er einn eftirsóttasti ökumaðurinn í Formúlunni í dag og verður virkilega áhugavert að sjá hvort að hann standist undir væntingum. Eitt er víst, að MCL34 bíllinn er hraður.

Sainz og Norris settu reglulega hröðustu hringi í prófunum og stefnir því í að McLaren færi sig nær slagnum um fyrsta sætið í ár.

Stöð 2 Sport mun að sjálfsögðu fylgjast vel með gangi mála er formúlan fer í gang. Æfingarnar verða í beinni á föstudaginn, tímatakan á laugardaginn og keppnin sjálf á laugardagskvöldið.

Dagskrá helgarinnar á Stöð 2 Sport:

15. mars 02.55 Æfing

16. mars 05.50 Tímatakan

17. mars 04.50 Keppnin


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×