Viðskipti innlent

Bein útsending: Ársfundur Landsvirkjunar 2019

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ársfundur Landsvirkjunar hefst klukkan 14 í dag í Silfurbergi í Hörpu.

Hægt er að fylgjast með honum í beinni útsendingu í spilaranum neðst í fréttinni en yfirskrift fundarins er „Í landi endurnýjanlegrar orku.“

Dagskrá fundarins:

•    Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra flytur ávarp í upphafi fundar

•    Jónas Þór Guðmundsson, stjórnarformaður: Ávarp

•    Hörður Arnarson, forstjóri: Á réttri leið

•    Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri: Loftslagsmál eru orkumál

•    Björk Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri: Ný sýn á landslag og mannvirki

•    Stefán Kári Sveinbjörnsson, verkefnisstjóri: Endurhannaður vindmyllugarður fyrir ofan Búrfell

•    Ólöf Rós Káradóttir, verkefnisstjóri: Ný ásýnd Hvammsvirkjunar

•    Rafnar Lárusson, fjármálastjóri: Fjármál á tímamótum

•    Stefanía G. Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs: Endurnýjanleg orka er verðmætari

•    Gerður Björk Kjærnested, verkefnisstjóri á samskiptasviði er fundarstjóri








Fleiri fréttir

Sjá meira


×