Nýársspá Siggu Kling – Meyjan: Átt eftir að þróa andlegu orkuna þína í sumar Sigga Kling skrifar 4. janúar 2019 09:00
Elsku Meyjan mín þú et með ótrúlega orku yfir þér sem er að heilsa þér á þessu nýja ári, en fyrsti mánuðurinn gefur þér boxhanska og sá næsti á eftir sýnir þér hvernig á að nota þá. Það er algjör óþarfi fyrir þig að vera óttasleginn og hnipra þig í fósturstellingar í janúar, því mars, apríl og maí verða mánuðir frelsis, forystu og fegurðar, eða F-in þrjú! Þótt þig þyrsti í athygli er það alls ekki svo mikið að þú leggir líf þitt að veði, en auðveldasta leiðin verður aldrei þín, því þú elskar áskoranir og ótroðnar slóðir. Hjarta þitt er eins og tónlistarhúsið Harpan, með vítt til veggja, marga skemmtilega sali þar sem alltaf eitthvað nýtt er að gerast. Af eins mikilli orku, að þegar þú elskar gerir þú það af lífi og sál og gefur af þér svo mikið að enginn getur skilið hvernig þú ferð að því, en tilfinningar þínar eru svo viðkvæmar að þú manst of vel eftir ljótum eða leiðinlegum orðum sem ættu að vera löngu eydd úr minni þínu. Því að þegar þú verður virkilega særð er eins og allt minni þitt opnist og þú verður svo reið og sár, en það býr aðeins til þreytu og dregur úr þér aflið. Annars verður þetta svo algjörlega árið þitt og áður en margir mánuðir verða liðnir geturðu sjálf klappað þér á bakið því þú þarft svo sannarlega engan eða nokkuð annað til að sannfæra þig um hver þú ert og hvað þú getur, því þú ert með þetta og þú munt vita það. Þú átt eftir að þróa andlegu orkuna þína í sumar, jafnvel hugsa um að læra sálfræði og um mannshugann og þér á eftir að finnast það svo heillandi, því þar muntu finna hvar þínir styrkleikar liggja. þú mynt finna þá eflast og ekki gefa veikleikum neina athygli, því það sem fær ekki athygli deyr.Frægar Meyjur: Ragna Lóa Stefánsdóttir íþróttakona, Manuela Ósk fyrirsæta, Björk Eiðsdóttir ritstýra, Andrea fatalistamaður, Claudia Schiffer fyrirsæta, Edda Björgvinsdóttir leikkona, Eva Dögg Sigurgeirsdóttir, ritstjóri og tískugúrú, Herdís Jóhannesdóttir athafnakona, Beyoncé Knowles söngkona, Gylfi Þór Sigurðsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona, Annie Mist crossfittari, Logi Pedro Stefánsson tónlistarmaður, Selma Ragnars, fatahönnuður Íslands, Lalli Johns góðkunningi lögreglunnar, Sema Erla Serdar, baráttukona, Eydís Ósk hjúkrunarkona, Raggi Bjarna.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið „Endurtek í sífellu: Ég vil ekki deyja, ég vil ekki deyja“ Áskorun Tíminn sem fór í að ræða perra inni í hreyfingunni með ólíkindum Lífið Átta ára með sinn eigin bíl á bílasýningu á Akureyri Lífið „Þetta lag minnir mig alltaf á að hafa tapað Idolinu“ Lífið Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Lífið „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Tónlist „Gaman hvað verið er að tala fallega um samstarfsfólkið mitt“ Bíó og sjónvarp „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Lífið Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Þetta lag minnir mig alltaf á að hafa tapað Idolinu“ Tíminn sem fór í að ræða perra inni í hreyfingunni með ólíkindum Átta ára með sinn eigin bíl á bílasýningu á Akureyri Heilmikil skemmtidagskrá og samsöngur á Þingvöllum í dag Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Sjá meira