Tekjur í hagkerfinu vaxa og eigið fé fyrirtækja styrkist um tíu prósent Jón Þórisson skrifar 25. nóvember 2019 07:00 Eigið fé í hagkerfinu jókst í heild um ríflega tíu prósent. Vísir/vilhelm
Heildarvöxtur tekna í viðskiptahagkerfinu var um 6,2 prósent á síðasta ári miðað við árið á undan. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Samtals voru tekjurnar 4.400 milljarðar króna í fyrra. Heildartekjur sjávarútvegs jukust mest, um 44 milljarða króna, eða fimmtán prósent. Tekjur í tækniframleiðslu jukust um þrettán milljarða króna, sem er þrettán prósent vöxtur og tekjur af málmframleiðslu jukust um 29 milljarða króna, eða sem samsvarar 13 prósent hækkun. Þá hækkuðu heildartekjur einkennandi greina ferðaþjónustu um 31 milljarð króna sem er fimm prósent vöxtur. Eigið fé í hagkerfinu jókst í heild um ríflega tíu prósent og var í lok árs 3.300 milljarðar króna. Eigið fé heildsöluverslana jókst um 24 milljarða króna milli ára, eða um fimmtung, í tækniframleiðslu jókst eigið fé um 28 milljarða króna sem sömuleiðis er fimmtugsaukning. Í smásöluverslun jókst eigið fé um 28 milljarða króna, eða sextán prósent. Eigið fé í ferðaþjónustu lækkaði á hinn bóginn um 13 milljarða króna í fyrra og er það samdráttur um ellefu prósent. Það má að mestu leyti rekja til lækkunar eigin fjár félaga í flugrekstri að því er Hagstofan segir. Launakostnaður jókst nokkuð á árinu 2018, eða um 61 milljarð króna. Í einstaka greinum eykst launakostnaður mest í tækniframleiðslu, eða um fimmtán prósent, tólf prósent í ferðaþjónustu og ellefu prósent í sjávarútvegi.
Birtist í Fréttablaðinu Efnahagsmál Mest lesið Sólon lokað vegna gjaldþrots Viðskipti innlent „Rán um hábjartan dag“ kom ekki á óvart Viðskipti innlent Berjaya vill halda áfram að leigja Nordica og Natura Viðskipti innlent Buffett hættir sem forstjóri við lok árs Viðskipti erlent Reyndist ekki rétt: „Reykvíkingar munu aldrei koma“ Atvinnulíf Hætta við að reka OpenAI í hagnaðarskyni Viðskipti erlent Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Neytendur Farþegum fjölgaði um 24 prósent í apríl Viðskipti innlent Ráðin hagfræðingur SVÞ Viðskipti innlent „Þetta eru bara krakkar sem eru í þessu fyrir peningana“ Neytendur Fleiri fréttir Berjaya vill halda áfram að leigja Nordica og Natura Farþegum fjölgaði um 24 prósent í apríl Sólon lokað vegna gjaldþrots Slær bjartari tón þegar kemur að verðbólgunni AGS: Spenna í milliríkjaviðskiptum og bandarískir tollar gætu haft áhrif á Íslandi Sveinn verður viðskiptastjóri hjá Styrkás Ráðin hagfræðingur SVÞ Fríhöfnin fær nýtt nafn og verður lokað um tíma í vikunni Tollar Trump á kvikmyndir „mjög sérstakt útspil“ Ráðinn framkvæmdastjóri mannauðs hjá Benchmark Genetics Þórdís til dómsmálaráðuneytisins „Rán um hábjartan dag“ kom ekki á óvart Hjálmtýr viðskiptastjóri fyrirtækjasviðs ELKO Landsbankinn geri úrbætur vegna lánveitinga til lítilla og meðalstórra fyrirtækja Óttast ekki komu Starbucks til Íslands Selja Íslandsbanka á næstu vikum þó það sé „mikil óvissa“ Hömlulaus einokun á Keflavíkurflugvelli „Í markaðshagkerfi þurfa menn bara að synda“ Kaupfélagið hagnaðist um 3,3 milljarða Syndis kaupir Ísskóga Segja afkomuna ásættanlega þrátt fyrir tap „Þetta er ömurleg staða“ Landsbankinn hagnaðist um 7,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hætta við að selja hlutina í Olíudreifingu Tap á Vinnslustöðinni og fjárfestingar settar á ís Rannsaka meint samkeppnisbrot Landsvirkjunar Staðfesta frávísun vegna stefnu Samskipa í samráðsmáli Play tapaði þremur og hálfum milljarði á fyrsta ársfjórðungi Staðfesta að gjöf í formi bankakorts er skattskyld Þau vilja stýra ÁTVR Sjá meira