Innlent

Grunaður um gróf brot gegn kærustu á malarplani í grennd við Egilsstaði

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Brotið sem ákært er fyrir átti sér stað í grennd Egilsstaða.
Brotið sem ákært er fyrir átti sér stað í grennd Egilsstaða. Vísir/Vilhelm
Karlmaður hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir nauðgun, frelsissviptingu og stórfellt brot í nánu sambandi með því að hafa föstudagskvöld í júní 2018 og inn í nóttina brotið á fyrrverandi kærustu sinni. Lýsingar í ákærunni eru ekki fallegar en honum er gefið að sök að hafa í og við bíl á malarplani rétt utan Egilsstaða „ráðist að konunni með ofbeldi, haft samræði og önnur kynferðismök við hana án hennar samþykkis með því að beita hana ofbeldi og hótunum.“

Er honum gefið að sök að hafa svipt konuna frelsi í að minnsta kosti tvær til fjórar klukkustundir. Í ákærunni kemur fram að maðurinn sló hana að minnsta kosti einu sinni í andlitið, hótaði henni og fyrrverandi eiginmanni ítrekað lífláti, greip og hélt í fatnað hennar og hendur. Þá henti hann henni í jörðina og dró hana eftir henni, tók ítrekað kverkataki og herti að þannig að hún átti erfitt með andardrátt.

Maðurinn er í framhaldinu sagður hafa þrýst hnjám sínum í bringu hennar þar sem hún lá á jörðinni, ýtt henni og sparkað í. Hann er sagður hafa þvingað hana í tvígang inn í bílinn, klætt úr buxum, þvingað fótleggi í sundur og sleikt kynfæri hennar. Í framhaldinu hafi hann þvingað hana til kynferðismaka með ýmsum hætti.

Í ákæru segir að lífi, heilsu og velferð konunnar hafi verið ógnað á alvarlegan, sársaukafullan og meiðandi hátt. Hlaut hún rauð og æðasprungin augu en auk þess mar og rispur víðs vegar um líkamann.

Krafist er 2,5 milljóna króna miskabóta í málinu sem þingfest var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×