Jól

Jólalag dagsins: Ellefu ára Svala Björgvins syngur Ég hlakka svo til í Jólaboði Afa

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Svala Björgvins hefur fyrir löngu sungið sig inn í hjörtu landsmanna. Ég hlakka svo til er eitt vinsælasta jólalagið hér á landi.
Svala Björgvins hefur fyrir löngu sungið sig inn í hjörtu landsmanna. Ég hlakka svo til er eitt vinsælasta jólalagið hér á landi.
Annar desember er runninn upp og því 22 dagar til jóla. Á sjónvarps- og útvarpsvef Vísis má finna fjölmörg hugljúf jólalög sem margir af okkar fremstu listamönnum hafa tekið í gegnum tíðina.

Vísir ætlar að telja niður til jóla með fallegu jólalagi úr safni sínu á hverjum degi.

Í dag býður Vísir svo sannarlega upp á sögulegan slagara. Lagið Ég hlakka svo til með Svölu Björgvins. Svala söng lagið í þættinum Jólaboð Afa árið 1988 þegar hún var ellefu ára.

Lagið má heyra hér að neðan.

Í innslaginu sést söngkonu sem í dag er fertug, en var þarna níu ára, bregða fyrir. Kannastu við söngkonuna? Hún er í gulri peysu á 04:05 í myndbandinu.

Ljóst er að fjölmargir Íslendingar fá aldrei nóg af laginu. Að neðan má heyra útgáfu Jóhönnu Guðrúnar af sama lagi. Píanóleikarinn Stefán Örn Gunnlaugsson spilar undir.

Lagið var tekið upp fyrir Jólalistann á Stöð 2 árið 2011.

Og ... Páll Óskar, Simmi og Jói, Jón og Friðrik Dór, Anna Svava, Sveppi, Hugleikur og fleiri stórkanónur tóku jólalagið árið 2011 með Týndu kynslóðinni.


Tengdar fréttir






×