Jólin

Afslöppuð aðventa - svona minnkar þú desemberstressið

Hvíldarstundir, tónlist, bókalestur, strætóferðir í stað aksturs á eigin vegum og fleira til getur minnkað stress desembermánaðar til muna.
Hvíldarstundir, tónlist, bókalestur, strætóferðir í stað aksturs á eigin vegum og fleira til getur minnkað stress desembermánaðar til muna. Nordicphotos/getty
Fátt er verra en að vera fastur í umferðarsultu alla aðventuna. Það má gera ýmislegt til að koma í veg fyrir að eilíft stress og tímahrak verði einu minningarnar um aðventuna í ár.



Jólagjafir með fyrirvara


Flestar góðar húsmæður og -feður vita að jólagjafir skal kaupa inn jafnt og þétt en ekki allar á Þorláksmessu. Það sem hins vegar margir flaska á er að best er að sinna einnig innpökkun jafnt og þétt því það er ærið verk að eiga hana alla eftir nokkrum dögum fyrir jól. Gott ráð: sprautið hárlakki yfir gjafaborða og slaufur til að það haldist betur fram að afhendingardegi.



Útvarp á kvöldin

Það er ástæða fyrir því að margir slappa betur af í sumarbústað án sjónvarps. Einfalt ráð fyrir afslappaðri aðventu er að reyna að hafa sem minnst kveikt á sjónvarpinu í desember. Hlustið þess í stað á útvarpssögur, klassíska tónlist, fallega jólasálma og hljóðbækur með íslenskum eða innlendum skáldsögum eða jafnvel Íslendingasögum. Veljið ykkur einn klukkutíma í mesta lagi til að hafa kveikt á sjónvarpinu.



Reynið að keyra sem minnst

Umferðin getur verið afar þung í desember og heilmikil orka sparast við það að þurfa ekki að svitna í umferðarhnútum og passa upp á sig og aðra. Það er fullkomin afslöppun að láta þaulvana strætisvagnabílstjóra sjá um aksturinn og njóta útsýnisins. Nú, eða fá sér góðan göngutúr. Mælum með að bakpoki sé tekinn með í bæjarferðina undir jólainnkaupin, með góðum stuðningi. Ekki gleyma því svo að það má nota póstþjónustu til að koma pökkum á milli bæjarhluta.



Takið góða hvíld á milli verka

Setjið inn í stundarskrána pásur þegar dagarnir eru þéttbókaðir í verkum og vinnu. Ekki hugsa um vinnu eða hvað á eftir að gera í þessum hléum heldur hreinsið hugann, jafnvel með góðri tónlist eða slökun sem hentar. Tölvuleikur, kapall eða bók er ekki vitlaus hugmynd. -jma



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×