Ákall eftir þátttöku fyrirtækja í þróunarsamvinnu Heimsljós kynnir 26. ágúst 2019 14:45 Ljósmynd frá Malaví. gunnisal
Öll helstu íslensku félagasamtökin í mannúðarstarfi og alþjóðlegri þróunarsamvinnu hafa tekið höndum saman og ætla í næsta mánuði, í samstarfi við utanríkisráðuneytið, að endurvekja átakið „Þróunarsamvinna ber ávöxt“og leggja að þessu sinni áherslu á þátttöku fyrirtækja í þróunarsamvinnu. Vitundarvakningin fer fram dagana 9.-13. september og einn helsti viðburðurinn verður málstofa um þátttöku fyrirtækja í þróunarsamvinnu. „Íslensk fyrirtæki geta lagt þung lóð á vogarskálar þróunarsamvinnu. Með heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun er gert skýrt ákall eftir þátttöku fyrirtækja í brýnustu verkefnum á heimsvísu, sem eru meðal annars loftlagsaðgerðir ásamt útrýmingu hungurs og fátæktar í öllum sínum birtingarmyndum. Með því að leggja til þekkingu, búnað, vinnuafl eða fjármuni hafa mörg fyrirtæki, stór og smá, breytt lífskjörum fjölda fólks, víðsvegar um heiminn. Markmið málstofunnar er að kynna afrakstur slíkra verkefna og ávinninginn sem þau geta haft fyrir fyrirtæki,“ segir í tilkynningu á Fésbókarsíðu átaksins. Þar segir enn fremur að starfsfólk, viðskiptavinir og fjárfestar geri æ meiri kröfur til fyrirtækja um samfélagslega ábyrga hegðun. Með þátttöku í þróunarsamvinnu geti fyrirtæki aukið stolt starfsmanna sinna og gefið viðskiptavinum og fjárfestum skýran og ábyrgan valkost.Á málstofunni, sem haldin verður á veitingahúsinu Nauthóli 10. september frá klukkan 9:00 til 11:30, verður einnig bent á hagnýtar leiðir til þess að vinna að framgangi heimsmarkmiðanna og tengjast alþjóðlegri þróunarsamvinnu. Málstofan er gjaldfrjáls og öllum opin.Fésbókarsíða Þróunarsamvinnu ber ávöxt Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Erlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent