27 missa vinnuna hjá Jarðborunum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. nóvember 2019 16:39 Sigurður Sigurðsson, forstjóri Jarðborana, segir verkefnaleit í fullum gangi. Aðsend
27 starfsmönnum Jarðborana var sagt upp störfum á þriðjudag. RÚV greindi fyrst frá. Sigurður Sigurðsson forstjóri segir verkefnaskort um að kenna en fyrirtækið sjái fram á algjört hlé í verkefnum í fimm til sjö mánuði. „Við erum með mjög öflugt lið til að afla verkefna,“ segir Sigurður og bendir á að sextíu prósent verkefna Jarðborana hafi verið utan landsteinanna. „Við erum að vinna á St. Vincenet í karabíska hafinu en það verkefni klárast í janúar. Sömuleiðis erum við að vinna fyrir Orkuveituna uppi á Hellisheiði en þeim samningi er að ljúka,“ segir Sigurður. Mögulega verði fleiri verkefni sem komi upp úr samstarfinu á næsta ári en ekkert sé í hendi. Á fundi með starfsmönnum á þriðjudag segist Sigurður hafa farið mjög vel yfir verkefnastöðuna. Staðan sé auðvitað hundleiðinleg en fólk skilji ástæðurnar. Um hundrað manns störfuðu hjá Jarðborunum fyrir uppsagnirnar. Bæði íslenskir og erlendir starfsmenn missa vinnuna. Mikil þekking tapist við brotthvarf þeirra að sögn Sigurðar en misjafnt er hvenær fólk ljúki störfum. Það dreifist yfir næstu fimm mánuði. Til greina komi að endurráða fólk ef verkefnastaðan batnar.
Vinnumarkaður Mest lesið Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Sjá meira