Traust og ábyrg fjárhagsstjórn
Mosfellsbær er vel rekið sveitarfélag, þrátt fyrir mikið uppbyggingarskeið þá hefur okkur engu að síður tekist að greiða niður skuldir og hefur skuldahlutfallið farið lækkandi. Þó kennitölur og rekstrarniðurstaða sé oft minnst spennandi umræðuefni fyrir kosningar þá er það engu að síður það sem mestu máli skiptir, enda ljóst að sveitarfélagið hefur meira svigrúm til að bæta þjónustuna og draga úr skattheimtu sé það vel rekið og fjárhagurinn traustur, eins og staðan er hér í Mosfellsbæ.
Grænn og fjölskylduvænn bær
Mosfellsbær er vel staðsett sveitarfélag innrammað af fallegum fellum ám og Leirvoginum. Tækifæri til útivistar og hreyfingar eru býsna mörg. Það er mikilvægt að við frekari uppbyggingu sé gætt að þessum dýrmætu fjársjóðum sem náttúran er okkur og tryggja að aðgengi íbúa að þeim sé sem best.Aðbúnaður fyrir fjölskyldur er það sem skiptir okkur mestu máli, góðir og öflugir skólar ásamt fjölbreyttu íþrótta- og tómstundastarfi. Skólarnir í Mosfellsbæ eru í fremstu röð, en stöðugt þarf að vera á tánum og tryggja góðan aðbúnað starfsfólks og nemenda. Það að efla lestrarkunnáttu er stöðugt verkefni og tryggja þarf gott aðgengi nemenda og starfsfólk að fullkomnustu tækni hverju sinni.
Höfundur er alþingismaður