Weah: Kallaður rusl og sagður standa að eilífu í skugga föður míns Tómas Þór Þórðarson skrifar 13. júlí 2018 23:15 Timothy Weah spilaði fyrsta landsleikinn í mars. vísir/getty
Timothy Weah, leikmaður Paris Saint-Germain og bandaríska landsliðsins í fótbolta, setur stefnuna á að verða besti leikmaður Bandaríkjanna frá upphafi. Þrátt fyrir að faðir hans sé frá Líberíu og er í dag forseti landsins er Weah frá Bandaríkjunum en hann er fæddur og uppalinn í New York. Hann er mjög stoltur af rótum sínum og vill gera vel fyrir bandaríska landsliðið í framtíðinni. Hann þarf að ná ansi langt til að komast úr skugga föður síns en George Weah vann átta stóra titla á ferlinum sem leikmaður Monaco, PSG, AC Milan og Chelsea var kjörinn besti leikmaður heims árið 1995.I’m working my butt off everyday to make sure people have my name on the tip of their tongue. I’m not here to joke around or waste time I want to put my city and country on the map and I won’t stop until I’m “we’re” at the top ..New York Builds Greats @NikeNYC@nike#justdoitpic.twitter.com/U7XYE2SKyk — TIM WEAH (@TimWeah) July 10, 2018 „Það er til fólk sem segir að ég verði aldrei jafngóður og faðir minn. Sumir kalla mig rusl og spyrja mig hvers vegna ég spila fyrir bandaríska landsliðið. Þetta gerir bara að verkum að ég vill enn þá frekar verða stjarnan sem Bandaríkin hafa verið að leita að,“ segir Weah í viðtali við Nike. „Draumur minn er að vera besti leikmaður sögunnar sem kemur frá Bandaríkjunum og New York. Ég vil vera byrjunarliðsmaður í bandaríska landsliðinu og spila fyrir þjóð mína.“ Weah þreytti frumraun sína með Paris Saint-Germain á síðustu leiktíð og spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir Bandaríkin í mars þannig ferill hans er virkilega að fara af stað. „Ég hef gert margt til að komast hingað. Ég hef mætt mikið af fólki sem sögðu mér að ég myndi alltaf standa í skugga föður míns. Ég nota þetta bara sem hvatningu til að ná lengra. Ég elska föður minn en ég vil búa til mitt eigið nafn í boltanum,“ segir Timothy Weah.
Fótbolti Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Thelma Karen fer ekki á EM Fótbolti Fleiri fréttir Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen Sjá meira