Gömlu liðsfélagar Dagnýjar þurftu að hafa súrefniskúta á hliðarlínunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. ágúst 2018 14:30 Stærstu stjörnur Portland Thorns liðsins eru Tobin Heath og Christine Sinclair. Vísir/Getty
Leikur í bandarísku kvennadeildinni í fótbolta fór fram við erfiðar aðstæður í nótt þar sem fólk þurfti að hafa áhyggjur af áhrifum slæmra loftgæða á heilsu leikmannanna. Gömlu liðfélagar Dagnýujar Brynjarsdóttur í Portland Thorns FC tryggðu sér þá sæti í úrslitsakeppninni með 2-1 sigri á Sky Blue FC. Leikurinn fór fram á heimavelli Portland Thorns FC, Providence Park, en til þess að passa upp á heilsu leikmanna voru hlé gerð á leiknum á fimmtán mínútna fresti. Þá voru súrefniskútar í boði fyrir leikmenn á hliðarlínunniDue to the air quality in Portland, the NWSL will implement breaks during tonight’s match to ensure player safety. In addition to the added breaks, oxygen tanks will be available behind each team’s bench. Breaks will be at 15, 30, 60, 75. #BAONPDX#PORvNJ — Portland Thorns FC (@ThornsFC) August 23, 2018Ástæðurnar fyrir þessum óvenjulegum hléum og af hverju leikmenn þurftu aðgengi að súrefni í miðjum leik voru slæm loftskilyrði á leikvanginum í Portland. Mælingar sex tímum fyrir leik gáfu til kynna að loftgæðin væru undir löglegum mörkum en National Women's Soccer League ákvað samt að leikurinn færi engu að síður fram. Til að koma til móts við hættuna voru því hlé gerð á leiknum á 15., 30., 60. og 75. mínútu. Mikill hiti var líka í Portland sem gerði bæði leikmönnum og áhorfendur lífið erfitt en vegna þeirra máttu áhorfendur sem dæmi koma með vatnsbrúsa inn á leikinn.Important information for tonight's match. It's gonna get a little hot out there. #PORvNJ#BAONPDXpic.twitter.com/L8O8LShjWV — Portland Thorns FC (@ThornsFC) August 22, 2018Dagný Brynjarsdóttir varð bandarískur meistari með liði Portland Thorns FC í fyrrahaust. Liðið endaði þá í 2. sæti í deildarkeppninni en datt nú niður í þriðja sæti. Þriðja sætið skilaði Portland Thorns engu að síður í úrslitakeppnina þar sem liðið fær tækifæri til að verja titilinn. Það verður örugglega mun erfiðara án smitandi leikgleði og baráttuanda íslensku landsliðskonunnar Dagnýjar Brynjarsdóttur. Hér fyrir neðan má sjá svipmyndir frá sigurleik Portland Thorns liðsins í nótt.Tuck yourself into bed with tonight's highlights. #PORvNJ#BAONPDXpic.twitter.com/lZSGlT7vQA — Portland Thorns FC (@ThornsFC) August 23, 2018
Fótbolti Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fleiri fréttir „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Sjá meira