Já, slátrum endilega mjólkurkúnni Þórir Garðarson skrifar 20. nóvember 2018 09:06 Erlendir ferðamenn eyða miklum peningum þegar þeir dvelja hér á landi og ríkissjóður hagnast verulega á þeirri eyðslu. Gróflega áætlað skiluðu erlendir ferðamenn 46 milljarða króna virðisaukaskatti í fyrra. Það voru 20% af tekjum ríkisins af virðisaukaskatti. Ekki slæmt að hafa þessa nýju skattgreiðendur. Ekki fá þeir mikið í staðinn. Ekki ganga þeir í skóla hér eða þiggja aðstoð frá hinu opinbera. Tekjur ríkisins af erlendum ferðamönnum hafa farið hratt vaxandi. Hluti ferðaþjónustunnar sem stóð utan við virðisaukaskattskerfið var tekin þar inn árið 2016. Við það jukust virðisaukaskattstekjur ríkissjóðs af erlendum ferðamönnum um meira en tuttugu milljarða á milli áranna 2015 og 2017.Vofa Samfylkingarinnar gengur ljósum logumÞrátt fyrir þetta myndarlega framlag útlendinga í ríkissjóð hefur Samfylkingin enn einu sinni lagt til að kafa dýpra í vasa ferðamanna með skattahækkunum. Það hækkar auðvitað kostnað ferðamanna. En líkt og fyrri daginn hefur Samfylkingin ekkert spáð í hvaða áhrif það getur haft. Samfylkingin virðist ekki hafa séð fréttirnar um fækkun ferðamanna á landsbyggðinni og styttri dvalartíma þeirra vegna þess hvað kostnaðurinn við Íslandsferðina hefur hækkað mikið. Samfylkingin heldur að það sé í lagi að hækka þennan kostnað enn meir. Samfylkingin virðist ekki hafa frétt af því að ferðaþjónustan stendur undir helmingnum af hinum mikla hagvexti og uppbyggingu hér á landi undanfarin ár. Samfylkingunni virðist slétt sama þó að skattahækkun fæli erlenda ferðamenn í burtu í stríðum straumum og stefni efnahagslegum ávinningi þjóðfélagsins í hættu. Samfylkingunni virðist slétt sama þótt mjólkurkúnni verði slátrað til þess eins að geta yfirboðið aðra stjórnmálaflokka í útgjaldaloforðum.Hættulegt að leggja meiri skatta á erlenda ferðamennFrá 2012 til 2017 fjölgaði íbúum hér á landi um 6%. Á sama tíma rúmlega þrefaldaðist fjöldi erlendra ferðamanna og VSK tekjur ríkissjóðs jukust um 44%. Það þarf engan stærðfræðisnilling til að sjá hvaðan þessar auknu VSK tekjur komu aðallega. Þann tíma sem erlendur ferðamaður dvelst hér á landi skilar hann tvöfalt meiri VSK tekjum til ríkisins en heimamaður. Það er stórhættulegt að halda að erlendir ferðamenn taki því þegjandi að láta skattleggja sig enn frekar. Þeir hafa val um hvort þeir borga háa skatta hér á landi eða hóflegri skatta annars staðar. Þeir sleppa því einfaldlega að koma hingað. Við þurfum ekki að ná meiri sköttum af erlendum ferðamönnum. Miklu frekar þurfum við að leggja eitthvað af þessum fjármunum til að þeir haldi áfram að koma. Þörf er fyrir úrbætur í vegamálum, aukna stígagerð, fjölgun bílastæða og salerna á vinsælum ferðamannastöðum svo dæmi séu nefnd. Í fyrra lagði ríkissjóður 600 milljónir króna í framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Þetta er stærsti útgjaldaliður ríkisins vegna ferðamanna og nemur aðeins um 1,3% af VSK tekjunum ef erlendu ferðamönnunum. Höfundur er stjórnarformaður Gray Line. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá María Gunnarsdóttir Skoðun Námsefnisgerð: Nýtum það sem þegar er til Bogi Ragnarsson Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Halldór 13.06.2026 Halldór Svona gera menn ekki Halldór Auðar Svansson Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Svona gera menn ekki Halldór Auðar Svansson skrifar Skoðun Námsefnisgerð: Nýtum það sem þegar er til Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Sjá meira
Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun