25 milljarða arður til hluthafa Arion banka Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 12. febrúar 2018 13:38 Arðgreiðslan er háð þeim skilyrðum að Kaupskil ehf., dótturfélag kaupþings, hafi selt minnst tveggja prósenta hlut í Arion banka eigi síðar en 15. apríl næstkomandi. Vísir/Stefán
Á hluthafafundi Arion banka hf. sem fram fór í dag var ákveðið að greiða 25 milljarða króna í arð til hluthafa bankans. Þá var ákveðið að taka upp í samþykktir bankans tímabundna heimild til handa stjórn bankans til að kaupa til baka hlutabréf sem útgefin eru í bankanum að heildarhámarki allt að tíu prósent af skráðum og fullgreiddum hlutum sem útgefnir hafa verið af Arion banka. Arðgreiðslan er háð þeim skilyrðum að Kaupskil ehf., dótturfélag kaupþings, hafi selt minnst tveggja prósenta hlut í Arion banka eigi síðar en 15. apríl næstkomandi.Í samræmi við langtímamarkmið bankans Í tilkynningu Arion banka til Kauphallar segir að arðgreiðslan og kaup á eigin bréfum sé að fullu í samræmi við langtímamarkmið Arion banka um að minkna umfram eigið fé bankans. Að framkvæmdinin lokinin lækkar eiginfjárhlutfall bankans um ríflega 3% en er engu að síður vel umfram kröfur FME og það sem bankinn telur hæfilegt, að því er segir í tilkynningunni. Greint var frá því í Fréttablaðinu í morgun að ekkert verði af kaupum íslenskra lífeyrissjóða á hlut í Arion banka fyrir útboð og skráningu bankans síðar á árinu. Hafa allir sjóðirnir, en tólf þeirra höfðu samþykkt að fara í óskuldbindandi viðræður við Kaupþing um kaup á tæplega tíu prósenta hlut, tekið ákvörðun um að fjárfesta ekki í bankanum áður en ársuppgjör hans verður birt næstkomandi miðvikudag, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Tengdar fréttir Harðvítug barátta um völdin innan vogunarsjóðsins Och-Ziff Capital Óttast er að harðvítug barátta um framtíð bandaríska vogunarsjóðsins Och-Ziff muni draga úr trausti fjárfesta á sjóðnum. Och-Ziff á 6,6 prósenta hlut í Arion banka. Hlutabréf sjóðsins hafa hríðfallið og eignir í stýringu lækkað. 7. febrúar 2018 11:00 Leggja til 25 milljarða arðgreiðslu takist að selja hlut í Arion banka Stjórn Arion banka leggur til að bankinn greiði 25 milljarða í arð til hluthafa bankans. Tillaga stjórnarinnar gerir þó ráð fyrir að arðgreiðslan sé háð því skilyrði að stærsti eigandi bankans hafi selt minnst tvö prósent eignar félagsins í bankanum fyrir 15. apríl. 6. febrúar 2018 10:52 Kaupa ekki í Arion banka fyrir útboð Lífeyrissjóðir slitu viðræðum við Kaupþing í lok síðustu viku. Á annan tug lífeyrissjóða hafði áður lýst yfir áhuga á að kaupa samanlagt tæplega tíu prósenta hlut í Arion banka. 12. febrúar 2018 05:45 Lífeyrissjóðir hafa áhuga á að kaupa um tíu prósent í Arion Tólf lífeyrissjóðir samþykktu að fara í viðræður um kaup í Arion banka. Lýstu yfir áhuga á að kaupa tæplega tíu prósent. Einnig viðræður við tryggingafélög og verðbréfasjóði. Kaupréttur að hlut ríkisins verður nýttur gangi áformin eftir. 7. febrúar 2018 06:00 Mest lesið Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Viðskipti innlent Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Viðskipti innlent Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Viðskipti innlent Yfir þúsund hafa fært flug vegna yfirvofandi verkfalls Viðskipti Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Atvinnulíf Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Viðskipti innlent Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Viðskipti innlent Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Sjá meira
Harðvítug barátta um völdin innan vogunarsjóðsins Och-Ziff Capital Óttast er að harðvítug barátta um framtíð bandaríska vogunarsjóðsins Och-Ziff muni draga úr trausti fjárfesta á sjóðnum. Och-Ziff á 6,6 prósenta hlut í Arion banka. Hlutabréf sjóðsins hafa hríðfallið og eignir í stýringu lækkað. 7. febrúar 2018 11:00
Leggja til 25 milljarða arðgreiðslu takist að selja hlut í Arion banka Stjórn Arion banka leggur til að bankinn greiði 25 milljarða í arð til hluthafa bankans. Tillaga stjórnarinnar gerir þó ráð fyrir að arðgreiðslan sé háð því skilyrði að stærsti eigandi bankans hafi selt minnst tvö prósent eignar félagsins í bankanum fyrir 15. apríl. 6. febrúar 2018 10:52
Kaupa ekki í Arion banka fyrir útboð Lífeyrissjóðir slitu viðræðum við Kaupþing í lok síðustu viku. Á annan tug lífeyrissjóða hafði áður lýst yfir áhuga á að kaupa samanlagt tæplega tíu prósenta hlut í Arion banka. 12. febrúar 2018 05:45
Lífeyrissjóðir hafa áhuga á að kaupa um tíu prósent í Arion Tólf lífeyrissjóðir samþykktu að fara í viðræður um kaup í Arion banka. Lýstu yfir áhuga á að kaupa tæplega tíu prósent. Einnig viðræður við tryggingafélög og verðbréfasjóði. Kaupréttur að hlut ríkisins verður nýttur gangi áformin eftir. 7. febrúar 2018 06:00