Maradona kominn með nýtt starf í fótboltanum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. september 2018 08:30 Diego Maradona. Vísir/Getty
Argentínska goðsögnin Diego Maradona er kominn með nýtt starf í fótboltanum en nú liggur leið hans til Mexíkó. Maradona hefur sest í knattspyrnustjórastólinn hjá b-deildarliðinu Dorados de Sinaloa. Síðasta þjálfarastarf Maradona var hjá Al-Fujairah í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en hann hætti þar í apríl. Maradona endist oftast ekki í lengi í starfi og það verður fróðlegt að sjá hvar hann gerir í mexíkönsku b-deildinni.¡Diego llega a Dorados! Así como lo lees, Maradona será el nuevo entrenador del equipo de Dorados. #HazlaDePez#HazlaDeDiezpic.twitter.com/2fLGV1AHut — dportenis (@dportenis) September 6, 2018Dagblöð í Mexíkó sögðu að Maradona taki við starfinu af Francisco Gamez, sem var rekinn í gær. Diego Maradona var boðinn velkominn með stuttu myndbandi á samfélagsmiðlum félagsins með skilaboðunum „Velkominn Diego“ og „gerum þetta upp á tíu“ sem er vísun í treyjunúmer Maradona sem leikmanns. Maradona er orðinn 57 ára gamall og vakti síðast heimsathygli þegar hann fylgdist með argentínska landsliðinu á HM í Rússlandi í sumar. Hann lék alls 91 landsleik fyrir Argentínu á árunum 1977 til 1994 og þá var hann þjálfari argentínska landsliðsins frá 2008 til 2010. Stærsta stund Diego Maradona á knattspyrnuferlinum var einmitt í Mexíkó þegar hann leiddi argentínska landsliðið til sigurs á HM í Mexíkó árið 1986. Maradona var þá með 5 mörk og 5 stoðsendingar í 7 leikjum en hann skoraði bæði mörk liðsins í átta liða úrslitunum á móti Englandi og undanúrslitunum á móti Belgíu og lagði síðan upp sigurmarkið í úrslitaleiknum á móti Vestur Þýskalandi.
Fótbolti Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Veðmálasvindl tengt Ballon d'Or á borði lögreglu Hópurinn sem gæti komið Íslandi á EM Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Sjá meira