Louis Vuitton opnar sérbúð fyrir strigaskóinn vinsæla Ritstjórn skrifar 8. febrúar 2018 10:30 Glamour/Getty
Strigaskór ársins, enn sem komið er, er hinn svokallaði Archlight skórinn frá Louis Vuitton. Franska tískuhúsið ætlar að gera sérstaka verslun í kringum þennan eina skó í New York. Um er að ræða pop up verslun í SoHo hverfinu þar sem hægt verður að versla alla liti af þessum vinsæla strigaskó sem virðist tröllríða öllu. Strigaskórinn er væntanlegur þann 23. febrúar næstkomandi en verslunin verður opin til 10 mars. Það má búast við þessi skór seljist fljótt upp en þetta er fyrsta sinn sem Louis Vuitton opnar sérstaka verslun í kringum skó, en hingað til hafa þeir af og til gert það fyrir ný ilmvötn. Þess má geta að parið af Archlight skónum frá Louis Vuitton er á 780 pund eða um 110 þúsund íslenskar krónur. Louis Vuitton strigaskórnir koma í búðir í febrúar. Biðlistinn er örugglega orðinn virkilega langur.
Mest lesið Ólétt Natalie Portman kafar fyrir James Blake Glamour Kynlífsdagbók Jóns Gests og Natalíu Glamour Síðar kápur og hlýir jakkar Glamour Kim brýtur „bjútí-reglur“ Glamour Besta hárið á Cannes Glamour Skemmtir sér á skíðum með Björgólfi Thor Glamour Háar klaufar og pallíettur fengu að njóta sín Glamour iglo+indi gerir peysu til styrktar UN Women Glamour Critics Choice: Rauði dregillinn Glamour Alexander McQueen herferð tekin á Íslandi Glamour