
Einstakt afrek
Óhætt er að segja að eftirvæntingin sé áþreifanleg. Öll þjóðin bíður með öndina í hálsinum eftir að leikar hefjist. Þetta á ekki síst við um okkur sem störfum í fjölmiðlum. Útsendarar okkar á mótinu geta nú loksins hætt að spyrja strákana hvernig þeir hafi það á hótelinu og farið að fjalla um leikinn sjálfan og eftirköst hans.
Ísland mætir til leiks með lítið breytt lið. Flestir Íslendingar geta væntanlega allt að því þulið upp byrjunarliðið í leiknum á morgun með lokuð augun, og náð að minnsta kosti níu af ellefu réttum. Af hverju ættum við líka að breyta til? Árangurinn hefur verið ævintýri líkastur undanfarin ár.
Við skulum þó ekki taka því sem sjálfsögðum hlut að Ísland fari nú á hvert stórmótið á fætur öðru. Líkurnar verða aldrei með okkur. Við erum langfámennasta þjóðin sem leikið hefur í lokakeppni HM frá upphafi. Það vorum við líka á EM fyrir örfáum árum. Sá hópur leikmanna sem nú spilar fyrir Ísland er líka einstakur. Grjótharðir reynsluboltar eins og Kári Árnason, eða Ragnar Sigurðsson, í bland við náttúrulega hæfileika leikmanna eins og Jóhanns Berg Guðmundssonar og Gylfa Sigurðssonar.
Sumir þessara leikmanna eru nú komnir á aldur í knattspyrnulegu tilliti, aðrir, eins og landsliðsfyrirliðinn sjálfur, hafa lagt líf og limi að veði fyrir landsliðið í mörg ár og finna fyrir því á líkama og sál. Að minnsta kosti þrír landsliðsmenn hafa gengið til liðs við íslensk lið og hætta því væntanlega leik með landsliðinu að loknu HM. Kynslóðaskipti eru að hefjast fyrir alvöru.
Árangur Íslands undanfarin ár er samspil margra þátta. Lars Lagerbäck hóf byltinguna og Heimir Hallgrímsson hefur fumlaust tekið við kyndlinum. Þeir hafa haft úr einstakri gullkynslóð leikmanna að spila. Leikmanna sem hafa ekki bara hæfileika heldur líka hugarfar til að leggja sig alla fram fyrir lið og þjóð. Umgjörð um landsliðið hefur líka verið í sífelldri þróun. Bæði knattspyrnusambandið og aðdáendur íslenska liðsins geta verið stolt af þeim árangri sem náðst hefur.
KSÍ er örvinnustaður í samanburði við önnur knattspyrnusambönd, starfsmenn sambandsins virðast þó margra manna makar í vinnuframlagi og tryggja að aðbúnaður landsliðsins sé eins og best verður á kosið. Stuðningsmenn hafa líka séð til þess að ekkert erlent lið hlakkar nú til heimsóknar á Laugardalsvöllinn. Hálftómar stúkur heyra sögunni til.
Við Íslendingar skulum njóta þessara vikna í Rússlandi, bæði þau okkar sem heima sitjum og þau sem ætla að fylgja liðinu. Það eitt og sér að Ísland sé þátttakandi á mótinu er afrek sem lengi verður í minnum haft. Við getum ekki búist við að Ísland fari á stórmót á tveggja ára fresti.
Nú er bara að finna leið til að stoppa þennan Messi.
Áfram Ísland!
Skoðun

Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra
Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir skrifar

Réttlæti næst ekki með ranglæti
Ingibjörg Isaksen skrifar

Fagleg rök fjarverandi við opinbera styrkveitingu
Bogi Ragnarsson skrifar

Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega?
Vilhjálmur Birgisson skrifar

Heilbrigðistækni getur gjörbylt aðgengi og gæðum í heilbrigðisþjónustu
Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar

Ísland smíðar – köllum á hetjurnar okkar
Einar Mikael Sverrisson skrifar

Yfir 90% ferðamanna eru ánægðir með dvöl sína á höfuðborgarsvæðinu
Inga Hlín Pálsdóttir skrifar

Hvenær kemur að okkur?
Hjördís María Karlsdóttir skrifar

Frjór jarðvegur fyrir glæpagengi til að festa rætur
Halldóra Mogensen skrifar

Án greiningar, engin ábyrgð
Gísli Már Gíslason skrifar

Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi?
París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir skrifar

Verkin sem ekki tala
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska
Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir skrifar

Þið dirfist að kalla mig fasista og rasista?
Davíð Bergmann skrifar

Gleymdu að vanda sig
Vanda Sigurgeirsdóttir skrifar

Vindhögg Viðskiptaráðs
Finnbjörn A. Hermannsson skrifar

Skref aftur á bak fyrir konur með endómetríósu
Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar

Staða leikskólamála í Reykjanesbæ
Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar

Gervigreindaraðstoð: Kennarinn endurheimtir dýrmætan tíma
Björgmundur Guðmundsson skrifar

Tökum höndum saman áður en það er of seint
Karólína Helga Símonardóttir skrifar

PWC – Traustsins verðir?
Björn Thorsteinsson skrifar

Rasismi útskýrir stuðning við þjóðarmorð
Ingólfur Gíslason skrifar

Skuldin við jörðina: Kolefnisstjórnun skiptir sköpum
Nótt Thorberg skrifar

Pólitískar kreddur á kostnað skattgreiðenda
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Þetta eru börnin sem ég hef áhyggjur af í skólakerfinu
Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar

Óttumst við það að vera frjálsar manneskjur í frjálsu landi?
Arnar Þór Jónsson skrifar

Loftslagsváin bíður ekki
Ívar Kristinn Jasonarson skrifar

Hvers vegna að kenna leiklist?
Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Jóna Guðrún Jónsdóttir skrifar

Jafnt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu fyrir öll
Telma Sigtryggsdóttir skrifar

Svikin loforð í leikskólamálum Reykjanesbæjar
Gígja Sigríður Guðjónsdóttir skrifar