Metár í fjölda ferðamanna með sex prósenta aukningu milli ára Kristján Már Unnarsson skrifar 11. desember 2018 22:45 Ferðamenn í miðborg Reykjavíkur að vetrarlagi. Fréttablaðið
Árið 2018 er þegar orðið metár í fjölda ferðamanna, en ferðamannafjöldinn fyrstu ellefu mánuði ársins um Leifsstöð var álíka mikill og allt árið í fyrra. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2. Nýjustu tölur frá Ferðamálastofu um brottfarir erlendra farþega frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sýna að ekkert lát er á góðærinu í ferðaþjónustu. Tölurnar fyrir nóvember sýna 150 þúsund ferðamenn, fyrir þennan eina mánuð, sem er athyglisvert fyrir vetrarmánuð í skammdegi því það eru fleiri ferðamenn en til dæmis komu í júní 2015, bjartasta sumarmánuðinum, þegar 137 þúsund ferðamenn fóru af landinu um Leifsstöð. Þegar tölurnar fyrstu ellefu mánuði þessa árs eru bornar saman við fyrri ár virðist raunar lítil innistæða fyrir bölsýnistali. Fjöldinn á tímabilinu janúar til nóvember fór úr innan við milljón ferðamönnum árið 2014 og yfir tvær milljónir í fyrra og núna í ár er fjöldinn fyrstu ellefu mánuðina kominn í nærri 2,2 milljónir ferðamanna. Síðasta ár var metár, með 2,2 milljónir ferðamanna allt árið. Fjölgunin fyrstu ellefu mánuði þessa árs nemur 5,8 prósentum, og stefnir heildarfjöldinn þetta árið yfir 2,3 milljónir ferðamanna, 2018 verður því enn eitt metárið. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Ferðamennska á Íslandi Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira