Viðskipti innlent

Ríkisstjórnin ætlar ekki að hlaupa undir bagga með WOW Air

Berghildur Erla Bernharðsdóttir og Kristín Ólafsdóttir skrifa
Skúli Mogensen, forstjóri WOW Air.
Skúli Mogensen, forstjóri WOW Air. Vísir/Friðrik Þór Halldórsson
Samgönguráðherra segir að ríkisstjórnin muni ekki hlaupa undir bagga með WOW vegna bágrar fjárhagsstöðu fyrirtækisins. Þá sé afstaða ríkisstjórnarinnar jafnframt sú að fyrirtæki á markaði þurfi  að bjarga sér sjálf. Formaður viðreisnar vonar að ríkistjórnin sé tilbúin með viðbragðsáætlun fyrir Suðurnes vegna hópuppsagna á Keflavíkurflugvelli, ef þörf verði á.

Sjá einnig: Skúli fundaði með samgönguráðherra



Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar voru gestir þáttarins Sprengisands í morgun og voru m.a. spurð út í stöðu WOW Air.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.Vísir/Vilhelm

„Þetta eru fyrirtæki á markaði“

Sigurður Ingi sagði aðspurður að ríkistjórnin hafi þegar farið yfir til hvaða ráða eigi að grípa gangi rekstur félagsins WOW ekki upp í núverandi mynd.

„Við höfum séð baráttu WOW fyrir eigin lífi og við höfum fylgst mjög vel með því. Við höfum tryggt það að hið opinbera eftirlitskerfi sé í lagi, við höfum metið hvort ríkið hefði á einhverjum tímapunkti átt að stíga inn í. Við mátum að það væri ekki þannig.“

En er það núna?

„Nei, það er ekki þannig. Við höfum alltaf komist að þeirri niðurstöðu að þetta eru fyrirtæki á markaði, það sem ríkið þarf að gera er að skoða aðrar leiðir. Við höfum alltaf vonast eftir því besta en reynt að undirbúa okkur undir hið versta,“ sagði Sigurður Ingi, en bætti jafnframt við að hann væri vongóður eftir góðan fund með Skúla Mogensen, forstjóra WOW Air, á föstudag.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.Fréttablaðið/Ernir

Suðurnesin verst stödd

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar segir mikilvægt að ríkistjórnin sé með viðbragðsáætlun vegna stöðu sem gæti komið upp.

„Ég hins vegar vona að menn séu tilbúnir, því það er ákveðinn landshluti sem yrði einna verst fyrir þessu, og það eru Suðurnesin,“ sagði Þorgerður og vísaði þar til þess að á þriðja hundrað manns var sagt upp hjá Airport Associates og WOW Air á Keflavíkurflugvelli fyrir helgi.

„Við þurfum að vera líka með viðbragðsáætlanir fyrir fólkið sem verður hugsanlega fyrir breytingum á þessum markaði.“

 

Riddarinn á hvíta hestinum

Greint var frá því fyrir helgi að fjárfestingafélagið Indigo Partners og WOW Air hafi gert með sér bráðabirgðasamkomulag um fjárfestingu Indigo í WOW. Félaginu er lýst sem „riddara á hvítum hesti“ sem komi flugfélaginu WOW til bjargar í umfjöllun á vefsíðu bandaríska viðskiptamiðilsins Forbes.

Skjáskot/Forbes
Blaðamaður Forbes vill jafnframt meina að WOW Air hafi átt lokaorðið í viðskiptum sínum við Icelandair en fyrirhuguð kaup þess síðarnefnda á WOW fóru út um þúfur í vikunni. „Sá hlær best sem síðast hlær,“ ritar blaðamaður í ljósi þess að Indigo hafi ákveðið að hlaupa und­ir bagga með WOW Air.

Hlutabréf í Icelandair hafa hríðfallið í kjölfar þess að horfið var frá kaupunum. Þá var greint frá því á föstudag að WOW tapaði 4,1 milljarði króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2018. Tapið er rakið til neikvæðrar umræðu um stöðu félagsins og hækkunar á eldsneytisverði. 

Umræður Sigurðar Inga og Þorgerðar Katrínar um WOW Air hefjast á mínútu 14:20 í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir

Skúli átti í viðræðum við Indigo á sama tíma og hann samdi við Icelandair

Skúli Mogensen stofnandi og forstjóri WOW air átti í viðræðum við bandaríska fjárfestingarfélagið Indigo Partners á sama tíma og hann var í viðræðum við Icelandair Group um kaup á WOW air og eftir að skrifað var undir kaupsamning. Hann segist hafa vonast til að Icelandair myndi falla frá samrunanum þegar áhugi Indigo Partners var ljós.

WOW air verður „ofurlággjaldaflugfélag“ ef Indigo fylgir sömu stefnu

Búast má við miklum breytingum á rekstri WOW air á næstunni ef Indigo Partners mun fylgja sömu stefnu gagnvart WOW air og fyrirtækið hefur fylgt gagnvart öðrum lággjaldaflugfélögum sem það hefur fjárfest í. Þetta segir forstjóri fraktflugfélagsins Bluebird Nordic sem hefur meira en 20 ára reynslu á flugmarkaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×