Jól

Með upplýsta Landakirkju á jólum

Elín Albertsdóttir skrifar
Elva Ósk með fallegu kirkjuna sem faðir hennar smíðaði handa henni.
Elva Ósk með fallegu kirkjuna sem faðir hennar smíðaði handa henni. MYND/EYÞÓR

Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona tekur alltaf upp Landakirkju fyrir jólin sem faðir hennar, Ólafur Oddgeirsson, smíðaði. Ólafur gaf öllum sex börnum sínum kirkju. Systkinin ólust upp við sams konar kirkju á æskuheimilinu.



Elva Ósk segir að faðir hennar hafi verið einstakur hagleiksmaður, hann smíðaði margt fallegra gripa, meðal annars jólasveina. Fyrstu kirkjuna smíðaði hann þegar Elva var barn að aldri en hún var alltaf sett upp fyrir jólin. Ólafur lagði mikla natni í verkið en hugmyndina sótti hann til Landakirkju í Vestmannaeyjum þar sem fjölskyldan bjó. Kirkjan er upplýst og er uppáhaldsjólaskraut Elvu



„Ég reyndi að troða smádúkkum í gegnum dyrnar á kirkjunni í gamla daga,“ segir Elva og hlær en bætir síðan við að kirkjan hafi verið stór hluti af jólunum.



„Í gamla daga var sett bómull í kringum hana og litlum jólasveinum og skrauti raðað á hann. Ég hef reyndar ekki gert það þótt ég sé mikil jólamanneskja. Yfirleitt byrja ég að skreyta í byrjun desember. Mér finnst aðventan yndislegur tími og ég er mjög hrifin af öllu dúlleríinu í kringum jólin. Maður hittir líka svo marga vini og ættingja í desember,“ segir hún.

Ólafur Oddgeirsson, faðir Elvu, smíðaði nokkrar svona kirkjur eftir Landakirkju í Vestmannaeyjum.MYND/EYÞÓR

„Ég hef sömuleiðis gaman af því að baka fyrir jólin. Þegar ég var sextán ára bakaði ég fjórar tegundir af smákökum fyrir jólin en núna læt ég Sörur duga. Mér finnst skatan ómissandi á Þorláksmessu og undanfarin ár hef ég verið með önd á aðfangadag.



Núna ætla ég að breyta til og hafa hreindýr. Mér finnst mjög skemmtilegt að elda og prófa nýja rétti. Auk þess þykir mér notalegt að vera heima um jólin. Stórfjölskyldan hittist alltaf á gamlárskvöld, það eru um þrjátíu manns.



Ég á tvö systkini sem eiga afmæli á jóladag og það var alltaf svolítið stress í kringum það að vera með afmæli á þeim degi. Við ákváðum þess vegna að breyta þessu, hittast í byrjun aðventu og aftur á gamlárskvöld en þá koma allir með einn rétt með sér. Ég elda alltaf kalkún,“ segir hún.



Elva á tvö uppkomin börn, 25 og 27 ára.



Hún segist finna fyrir kærleika í loftinu í desember. „Fallegu ljósin sem lýsa upp myrkrið eru svo kósí,“ segir hún.



„Einhvern veginn breytist andinn á aðventunni og fólk verður mýkra. Þess vegna er þetta svo frábær tími,“ segir Elva Ósk sem er í fríi frá leikhúsinu og naut jólastemningar í Þýskalandi þegar við náðum sambandi við hana.








×