Innlent

Umræða um sjálfsvíg opnari en áður

Sighvatur Jónsson skrifar
Salbjörg Bjarnadóttir hjá Embætti landlæknis segir umræðuna um sjálfsvíg hafa breyst mikið. Nú komi fram í útförum og minningargreinum að fólk hafi svipt sig lífi, slíkt hafi ekki tíðkast áður. „Við erum ekki að „hæpa“ eitthvað upp heldur tala af ábyrgð um sjálfsvíg og allan harmleikinn sem því fylgir,“ segir Salbjörg í samtali við fréttastofu. 

Hún segir að prestar sem tali um sjálfsvíg í útförum gerir það í samráði við aðstandendur hins látna. Hún segir þetta gera aðstandendum auðveldara fyrir en margir tali um að þeim finnist sem ekki megi ræða opinberlega um að viðkomandi hafi framið sjálfsvíg.

„Eigum við ekki að tala um þetta?“

Séra Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur greinir frá því á Facebook að hann hafi kynnst ótrúlegum sögum af fjölskyldum sem eru beittar ofbeldi af handrukkurum og fíkniefnasölum. Í samráði við aðstandendur og með leyfi þeirra ræðir séra Vigfús Bjarni opinskátt um fíkn og handrukkanir í útförum fólks sem hefur framið sjálfsvíg.

„Hvers konar veruleiki er, að það sé hægt að sætta sig við það, að það sé fólk sem beitir barsmíðum, meiðingum og vopnum í okkar samfélagi að rukka fíkniefni. Eigum við ekki að tala um þetta alls staðar? Eða ætlum við bara að hugsa um það? Hvílíkt rugl,“ sagði séra Vigfús Bjarni í útför í Hallgrímskirkju á dögunum.



Fólk með sjálfsvígshugsanir er minnt á Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið. Þjálfaðir og reynslumiklir sjálfboðaliðar á öllum aldri svara þeim símtölum og spjöllum sem berast. Fullum trúnaði er heitið.



Tengdar fréttir

Sjúkrahúsprestur ræðir fíkn og handrukkun í útförum

Sjúkrahúsprestur segir áhyggjuefni að handrukkarar gangi mjög hart fram við innheimtu fíkniefnaskulda. Í samráði við aðstandendur fólks sem hefur framið sjálfsvíg ræðir hann opinskátt um fíkn og ofbeldisógn í útförum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×