Viðskipti innlent

Vonsvikin með Wow eftir að hafa boðið félaginu gull og græna skóga

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
WOW vonast til að ákvörðunin verði til þess að auka hagkvæmni rekstursins.
WOW vonast til að ákvörðunin verði til þess að auka hagkvæmni rekstursins. Vísir/Vilhelm
Flugvallaryfirvöld Lambert-flugvallarins í St. Louis í Bandaríkjunum hafa lýst yfir vonbrigðum með ákvörðun Wow Air um að hætta beinu flugi til borgarinnar. Aðeins eru fimm mánuðir síðan áætlunarflug á flugleiðinni hófst.

Flugfélagið tilkynnti í ágúst á síðasta ári að það hefði bætt við fjórum borgum í miðvesturhluta Bandaríkjanna á flugáætlun sína og var St. Louis þar á meðal. Var jómfrúarferðin farin í maí á þessu ári.

Í tilkynningu á vef flugvallarins segir hins vegar að flugfélagið hafi tilkynnt flugvallaryfirvöldum að það myndi hætta að fljúga til St. Louis frá Íslandi frá og með 7. janúar næstkomandi.

„Þetta eru vonbrigði þar sem viðbrögðin frá viðskiptavinum á St. Louis svæðinu voru sterk,“ segir í yfirlýsingu flugvallarins þar sem einnig segir að samkvæmt upplýsingum flugvallarins hafi flugleiðin til St. Louis gengið einna best af þeim fjórum sem Wow Air bætti við til miðvesturhluta Bandaríkjanna á síðasta ári.

Wow Air hóf flug til St. Louis i maí.Vísir/Vilhelm

Felldu niður lendingargjöld og styrktu markaðsstarf

Í frétt staðarblaðsins St. Louis Post-Dispatch segir að yfirvöld, stofnanir og flugvöllurinn í St. Louis hafi boðið Wow Air 800 þúsund dollara, um 90 milljónir króna, í styrki til þess að markaðssetja flugleiðina auk þess sem að flugfélaginu var boðið að sleppa við að greiða lendingargjöld á Lambert-flugvelli fyrstu átján mánuðina og var sá styrkur talinn virði 392 þúsund dollara, um 44 milljóna króna.

Í yfirlýsingu flugvallarins segir að þar sem Wow hafi ákveðið að hætta við flugið til St. Louis muni fjárstuðningur flugvallarins falla niður.

Flugfélagið hefur sem kunnugt er glímt við fjárhagserfiðleika að undanförnu en vonir standa til þess að það sé komið yfir erfiðasta hjallann eftir að félagið tryggði sér 60 milljóna evra fjármögnun í síðasta mánuði. Félagið hefur að undanförnu leitað leiða til að hagræða í rekstri en tíu starfsmönnum var sagt upp hjá Wow air í byrjun mánaðarins.

Þá var einnig tilkynnt fyrir skömmu að félagið myndi hætta að fljúga til Stokkhólms, Edinborgar og San Francisco. Í dag var þó tilkynnt að Wow myndi að nýju fljúga til Tel Aviv í Ísrael.






Tengdar fréttir

WOW lauk 60 milljóna evra fjármögnun

Skuldabréfaútboði WOW air lauk í dag, 18. september. Stærð skuldabréfaflokksins nemur 60 milljónum evra, þar af 50 milljónir evra sem þegar hafa verið seldar og 10 milljónir evra sem verða seldar fjárfestum í framhaldi af útboðinu.

Tíu sagt upp hjá WOW air

WOW tilkynnti í gær um frekari hagræðingaraðgerðir en hætt verður að fljúga tímabundið til Stokkhólms, Edinborgar og San Francisco.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×