Culiacan á Bíldshöfða breyttist í mathöll Stefán Ó. Jónsson skrifar 8. október 2018 16:45 Mathöllin mun opna á Bíldshöfða 9 í desember, í rýminu hægra megin á myndinni. Vísir/Vilhelm
Eigendur matsölustaðarins Culiacan leita nú að áhugasömu veitingafólki sem væri til í að opna með þeim mathöll á Bíldshöfða í desember næstkomandi. Ljóst er að mikil gróska er í mathallarflóru borgarinnar. Tvær mathallir eru nú þegar starfræktar, á Hlemmi og úti á Granda, auk þess sem til stendur að opna mathöll í Kringlunni í upphafi næsta árs – eins og Vísir greindi frá í dag. Sólveig Guðmundsdóttir, annar eiganda Culiacan, segist því gera sér grein fyrir að þær Steingerður Þorgilsdóttir séu ekki að finna upp hjólið í þessum efnum. Engu að síður hafi þetta fyrirkomulag gefið góða raun úti á Granda og á Hlemmi, rétt eins og úti í hinum stóra heimi. Fátt sé því til fyrirstöðu að mathöll plummi sig einnig á Bíldshöfða; þar sé lifandi atvinnustarfsemi og stutt í fjölmenn íbúðahverfi. Þar að auki sé mikil uppbygging fyrirhuguð í og við Höfðahverfið í Reykjavík á næstu árum. Ártúnshöfði er til að mynda skilgreindur sem einn stærsti þéttingarreitur borgarinnar, en gert er ráð fyrir uppbyggingu íbúðahúsnæðis og innviða í hverfinu fyrir allt að 11.500 manns. Sólveig segir að þær Steingerður hafi því dottið í lukkupottinn þegar þær fengu húsnæðið á Bíldshöfða. Um er að ræða rými í Bíldshöfða 9, sem áður hýsti Bílanaust. Mathöllin verður á jarðhæð, hægra megin við aðalinngang hússins og verður hún sýnileg frá aðalumferðaræðum svæðisins.Steingerður Þorgilsdóttir og Sólveg Guðmundsdóttir standa að opnun mathallarinnar.aðsendTil stóð að opna útibú fyrir Culiacan í rýminu en „húsnæðið reyndist miklu stærra en við þurftum,“ segir Sólveig. „Í staðinn fyrir að að þenja okkur út þar þá datt okkur í hug að fá fleiri til liðs við okkur,“ bætir hún við – og úr varð hugmyndin um að opna mathöll í rýminu. Sólveig segir að mathallarfyrirkomulaginu fylgi ýmsir kostir. Með aukinni breidd í veitingaflórunni megi tryggja ólíka álagspunkta í húsnæðinu. „Það er til að mynda ekki mikið að gera hjá Culiacan á morgnanna og seinni part dags en það er kannski þannig hjá öðrum. Með því að hafa fjölbreytta flóru veitingastaða er hægt að nýta húsnæðið sem best yfir daginn,“ segir Sólveg. „Það er algjör óþarfi að vera með risastað sem aðeins er nýttur í hádeginu og á kvöldin.“ Þrátt fyrir að fyrsta auglýsingin fyrir mathöllina hafi verið send út á laugardag segir Sólveig að nú þegar sé farið að spyrjast fyrir um pláss. „Við vorum varla búnar að skrifa undir samninginn þegar fólk byrjaði að sækja um þannig að það er greinilega mikil spenna fyrir þessu.“ Hún áætlar að alls verði hægt að bjóða upp á 8 mismunandi veitingastaði í mathöllinni og að Culiacan verði þeirra á meðal. Aðspurð um hvernig þau sjá höllina fyrir sér segir Sólveig að fyrst og fremst sé ætlunin að geta boðið upp á góðan og fjölbreyttan mat. Þannig geti hópar fólks komið saman í mathöllinni og allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Fyrirhugað er að Mathöllin Bíldshöfða opni í desember næstkomandi, sem fyrr segir.
Matur Neytendur Tengdar fréttir Opna mathöll í Kringlunni Fyrirhugað er að Stjörnutorg fái andlitslyftingu í náinni framtíð. 8. október 2018 11:54 Mest lesið Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini Neytendur „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Viðskipti innlent Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Viðskipti innlent Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Viðskipti erlent Íris ráðin til SI Viðskipti innlent „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Atvinnulíf Fleiri fréttir Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Sjá meira
Opna mathöll í Kringlunni Fyrirhugað er að Stjörnutorg fái andlitslyftingu í náinni framtíð. 8. október 2018 11:54