Matur

Einfalt með Evu: Lax í rjómasósu og ómótstæðilega baka

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eva Laufey kennir áhorfendur að reiða fram einfalda og góða rétti.
Eva Laufey kennir áhorfendur að reiða fram einfalda og góða rétti.

Einfalt með Evu fór í loftið á Stöð 2 á dögunum en í þáttunum matreiðir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir frábæra en á sama tíma einfalda rétti.

Uppskriftirnar verða ávallt aðgengilegar hér á Vísi. Hér að neðan má sjá uppskriftir úr þætti kvöldsins.

Lax í rjómasósu með döðlum og sólþurrkuðum tómötum

  • 500 – 600  g lax, beinhreinsaður
  • Ólífuolía til steikingar + smá smjörklípa
  • 1 1/2 dl smátt skorinn blaðlaukur
  • 10 döðlur, mjúkar og smátt skornar
  • 10 sólþurrkaðir tómatar, smátt skornir
  • 1 tsk ferskt timían
  • Salt og nýmalaður pipar, magn eftir smekk
  • 2 – 3 dl rjómi.



    Aðferð:
  1. Hitið olíu  á pönnu, skerið laxinn í jafn stóra bita og steikið á hvorri hlið í  2 – 3 mínútur. (Byrjið á því að steikja laxinn á roðhliðinni)
  2. Kryddið laxinn með timían, salti og pipar.
  3. Bætið vænni smjörklípu út á pönnuna rétt í lokin.
  4. Setjið laxinn á disk, leggið til hliðar og útbúið sósuna.
  5. Skerið blaðlauk, döðlur og sólþurrkaða tómata afar smátt og steikið upp úr olíu í smá stund, hellið rjómanum saman við og kryddið með salti og pipar. Leyfið sósunni að malla svolítið og berið strax fram með laxinum.
  6.  Berið fiskinn fram með parmesan kartöflumús

Parmesan kartöflumús

  • 600 g bökunarkartöflur
  • 1 dl rjómi
  • 60 g smjör
  • 50 g rifinn parmesan ostur
  • Salt og pipar, magn eftir smekk



    Aðferð:
  1. Afhýðið kartöflur og sjóðið í vel söltu vatni þar til kartöflurnar eru mjúkar í gegn.
  2. Hellið vatninu af og bætið rjómanum, smjörinu, nýrifnum parmesan ostinum saman við og stappið með kartöflustöppu þar til þið náið þeirri áferð sem þið kjósið.
  3. Bragðbætið með salti og pipar.

Ómótstæðileg baka með spínati, geitaosti og rauðrófum

Grunndeig fyrir bökur  

  • 150 g Kalt smjör
  • 250 g Hveiti
  • Salt á hnífsoddi
  • 1 eggjarauða
  • 4 msk Vatn
  1. Setjið smjör, hveiti, salt, eggjarauða og vatn í matvinnsluvél eða hnoðið með höndum þar til deigið er orðið samlaga. Sláið deiginu upp í kúlu og setjið plastfilmu utan um.
  2. Látið bökudeigið standa í kæli í minnsta kosti 30 mín áður en það er flatt út.
  3. Fletjið deigið þunnt út og setjið í eldfast hringlaga form, gatið deigið hér og þar með gaffal .
  4. Bakið botninn við 220°C eða þangað til hann er orðinn stífur og farinn að taka lit.

Fylling

  • 1 msk ólífuolía
  • 150 g spínat  
  • ½ l aukur
  • 5 egg
  • 200 g sýrður rjómi
  • 1 tsk fersk timían
  • 6 – 8 þykkar sneiðar geitaostur
  • 1 rauðrófa
  • Spínat, meðlæti
  • 1 msk Dijon sinnep
  • 2 dl ólífuolía
  • Salt og pipar
  • 150 g ristaðar valhnetur

Tengdar fréttir

Súper morgunverðarskál með acai berjum

Einfalt með Evu fór í loftið á Stöð 2 í kvöld en í þáttunum matreiðir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir frábæra en á sama tíma einfalda rétti.

Kjúklingapasta á fimmtán mínútum

Einfalt með Evu fór í loftið á Stöð 2 í kvöld en í þáttunum matreiðir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir frábæra en á sama tíma einfalda rétti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×