Býðst til að kaupa hús fyrir fyrrum fyrirliða landsliðsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. ágúst 2018 11:00 Samuel Eto'o er goðsögn í heimalandi sínu Kamerún. Vísir/Getty
Fyrrum fyrirliði kamerúnska fótboltalandsliðsins er heimilslaus og í miklum vandræðum en hann fær nú hjálp frá einum frægasta fótboltamanni þjóðarinnar. Norbert Owona er á sjötugsaldri (67 ára) en hann lék með landsliði Kamerún á sjöunda og áttunda áratugnum. Hann var um tíma fyrirliði landsliðsins. Nú er staðan á honum hins vegar ekki góð. Norbert Owona er á götunni og glímir líka við veikindi. Slæm staða hans var efni í heimildarmynd og vakti athygli markahæsta leikmanns Kamerún frá upphafi.Samuel Eto'o is already a legend for many. Now the former Barcelona man has said he will buy a house for a former Cameroon captain.https://t.co/D32nQkdp75pic.twitter.com/C1va0HmvBJ — BBC Sport (@BBCSport) August 30, 2018Samuel Eto'o er mjög vel stæður eftir flottan fótboltaferil með liðum eins og Barcelona, Internazionale og Chelsea en hann er líka tilbúinn að gefa eitthvað til baka. Samuel Eto'o heyrði af raunum Owona og heimsótti hann á sjúkrahúsið. Þar lofaði Samuel Eto'o síðan að kaupa hús fyrir Owona. Eto'o gaf Owana einnig 500 þúsund kamerúnska franka eða hundrað þúsund í íslenskum krónum. Annar landsliðsmaður, Joseph Kamga, hefur verið að berjast fyirr hönd enn eldri landsliðsmanna sem lifa við þröngan kost. Joseph Kamga var í HM-liði Kamerún á Spáni 1982. Fréttir af rausnarlegu framlagi Samuel Eto'o koma einmitt frá Joseph Kamga.Great heart Samuel Eto .Norbert Owona, former captain Cameroon lost everything he had in life, lost family in accident,became sick & homeless. Asked government of Cameroon for help to no avail, Eto'o paid him a visit gave him 500,000FCFA & promised to give him a brand new house pic.twitter.com/ep1TJJWeL4 — Collins Okinyo (@bedjosessien) August 28, 2018Owona hafði skrifað til ráðherra landsins og beðið um hjálp. Hann kvartaði þar yfir því að þurfa að lifa eins og dýr og það væri mjög ósanngjarnt að fá svona meðferð frá þjóð sinni. Owona átti í erfiðleikum með að fá læknishjálp af því að hann var bæði heimilislaus og peningalaus. Allur peningurinn hans hafði farið í að greiða fyrir krabbameinsmeðferð fyrir konu hans og börn. Samuel Eto'o skoraði 56 mörk í 118 landsleikjum frá 1997 til 2014. Hann er markahæstur frá upphafi og í öðru sæti yfir flesta landsleiki á eftir Rigobert Song (137 landsleikir).
Fótbolti Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Meiddist í Portúgal Enski boltinn Gylfi með til Eistlands Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Arnar situr fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Gylfi með til Eistlands Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ „Þetta er bara víti og rautt spjald“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Sjáðu mörkin úr slátrun Englands FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Modric skammast sín Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Strákarnir sitja fastir Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Sjá meira