Framleiðendur grípa til verðhækkana Helgi Vífill Júlíusson skrifar 23. ágúst 2018 05:00 Ölgerðin hefur hækkað verð um 6,8 prósent í ár vegna verðlagshækkana og launaþróunar. Fréttablaðið/?Anton Brink
Fyrirtæki hafa gripið til uppsagna og verðhækkana til að mæta auknum kostnaði sem meðal annars kemur til vegna hárra launa í alþjóðlegum samanburði. Nú síðast upplýsti Ölgerðin að hún muni hækka verð á framleiðsluvörum um 2,9 prósent um miðjan september vegna verðlagshækkana og launaþróunar.Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóir Félags atvinnurekenda.Það verður í annað sinn á árinu sem fyrirtækið hækkar verð en í byrjun árs nam hækkunin 3,9 prósentum, samanlagt er því hækkunin 6,8 prósent. Coca-Cola á Íslandi hækkaði verð á sínum framleiðsluvörum um 3,3 prósent 1. júlí síðastliðinn vegna innlendra kostnaðarhækkana, eins og það var orðað. Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir að alþjóðleg samkeppnisstaða íslenskra framleiðslugreina fari versnandi vegna hás launakostnaðar. „Laun hafa hækkað skarpt á undanförnum árum. Forsvarsmenn fyrirtækja hafa beðið í lengstu lög með að velta kostnaðarhækkunum út í verðlagið og geta margir hverjir ekki beðið lengur. Það getur hver sem er séð að frekari launahækkanir sem ekki er innistæða fyrir munu fara beint út í verðlag,“ segir hann.Ásgeir Jónsson, forseti Hagfræðideild Háskóla Íslands.Iðnaður á undir högg að sækja Ásgeir Jónsson, forseti hagfræðideildar Háskóla Íslands, segir að almennt séð eigi iðnaður á Íslandi undir högg að sækja vegna síhækkandi kostnaðar og samkeppni við innfluttar vörur. „Þekkt iðnaðarfyrirtæki eins og Plastprent og Kassagerðin hafa horfið. Hátt gengi krónu og miklar launahækkanir á undanförnum árum eru Þrándur í Götu þeirra.“ Að hans sögn eiga þau fyrirtæki sem framleiða þekkt vörumerk er njóta neytendatryggðar hægara um vik að fleyta kostnaðarhækkunum í verðlag. „Þau fyrirtæki sem ekki framleiða vörur sem studd eru af þekktum vörumerkjum eiga í mestum erfiðleikum með að hækka verð. Þau fyrirtæki standa því veikar. Það kæmi mér ekki á óvart að í þessu árferði reyni fyrirtæki sem hafa markaðsvald í krafti þekktra vörumerkja með neytendatryggð, eins og Ölgerðin og Vífilfell, að vinna með það,“ segir Ásgeir.Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.Uppsagnir fyrirtækja Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir að mörg fyrirtæki hafi gripið til hagræðingaraðgerða og sagt upp starfsfólki síðastliðið ár. Oddi sagði 86 starfsmönnum upp við upphaf árs þegar fyrirtækið hætti innlendri framleiðslu á plast- og bylgjuumbúðum, CCP sagði upp 30 starfsmönnum veturinn 2017 og Ölgerðin sagði upp 15 starfsmönnum fyrir um ári. „Um þessar mundir er gerð enn ríkari krafa um hagræðingu en áður. Hættan er sú að framleiðsla og störf fari úr landi ef þessi þróun heldur áfram, “ segir hann. Sigurður bendir á að íslensk framleiðslufyrirtæki eigi yfirleitt í erlendri samkeppni. Hvort sem það er í útflutningi eða í samkeppni við erlendar vörur hérlendis. Efnahagslegur óstöðugleiki og sveiflur í gengi krónu geri fyrirtækjum erfitt fyrir að skipuleggja reksturinn til lengri tíma. „Samspil launahækkana og gengisþróunar á undanförnum árum hafa gert það að verkum að kostnaður hefur hækkað mikið. Laun mæld í erlendri mynt hafa hækkað gríðarlega og eru há í alþjóðlegum samanburði. Við bætist að skattar á fyrirtæki hérlendis eru háir í alþjóðlegum samanburði. Þar munar mestu um tryggingagjaldið sem er skattur á laun. Auk þess skapaði lágt raforkuverð hérlendis landinu samkeppnisforskot en nú hefur dregið úr þeim mun. Þegar þetta leggst saman er myndin nokkuð skýr. Fyrirtæki verða að bregðast við með því að hækka verð eða fækka starfsmönnum eins og kom raunar fram í könnun sem við gerðum meðal okkar félagsmanna.“ Það styttist í kjaraviðræður á milli launþegahreyfinga og atvinnulífsins. „Staðan er sú að það er lítið sem ekkert til atvinnurekenda að sækja,“ segir hann.Hækkaði um 65 prósent Raungengi krónu miðað við hlutfallslegan launakostnað hækkaði um 65 prósent á árunum 2011 til 2017, samkvæmt gögnum frá Seðlabankanum. Launakostnaður á framleidda einingu hækkaði um 33 prósent hér á landi á sama tímabili samanborið við níu prósent í OECD-ríkjunum.Erlendir framleiðendur þurfa líka að hækka verð Erlendis reyna framleiðendur einnig að hækka vöruverð í kjölfar hækkana á hrávörumörkuðum. Procter & Gamble, sem ÍSAM er með umboðið fyrir, hefur hækkað verð á bleyjum, klósettpappír og eldhúsrúllum í Bandaríkjunum um fjögur til fimm prósent. Coca-Cola hefur einnig hækkað verð vegna ýmissa kostnaðarhækkana, allt frá flutningi til áls. Whirlpool mun einnig fleyta tollahækkunum á stáli og áli til neytenda. Þetta kemur fram í frétt Financial Times. Fyrirtæki á neytendavörumarkaði á borð við P&G, Unilever og Colgate-Palmolive hafa lengi átt erfitt með að fleyta auknum kostnaði í vöruverð vegna aukinnar samkeppni frá keppinautum á netinu og vegna þess að smásalar selja í auknum mæli ódýrari vörur undir eigin vörumerki.
Birtist í Fréttablaðinu Neytendur Mest lesið Sambíóin í Mjóddinni víkja fyrir Nova Viðskipti innlent Ætlað að verða nýtt íslenskt kennileiti á heimsmælikvarða Viðskipti innlent Hulunni svipt af vaxtaviðmiðinu Viðskipti innlent Jensens Bøfhus lokað Viðskipti erlent Grafalvarleg staða Viðskipti innlent Óvissu á lánamarkaði eytt í byrjun næsta árs Viðskipti innlent „Íslenski neytandinn er allavega ekki að sýna merki um samdrátt“ Neytendur Gætu flýtt fyrir með því að gera við biluðu spennana Viðskipti innlent Græða á tá og fingri á svikum og prettum Viðskipti erlent Telja viðgerð geta tekið allt að ár Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hulunni svipt af vaxtaviðmiðinu Grafalvarleg staða Sambíóin í Mjóddinni víkja fyrir Nova Bein útsending: Umræður á seinni degi Sjávarútvegsráðstefnunnar Gætu flýtt fyrir með því að gera við biluðu spennana Ætlað að verða nýtt íslenskt kennileiti á heimsmælikvarða Óvissu á lánamarkaði eytt í byrjun næsta árs Telja viðgerð geta tekið allt að ár Ráðin forstöðukona Þjónustu Veitna Bretar veita Alvotech leyfið sem fékkst ekki í Bandaríkjunum Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Samorku Útlit fyrir „hrollkaldan vetur“ en eitt ljós í myrkinu Bein útsending: Leiðir til að efla hlutabréfamarkaðinn Ómögulegt sé fyrir fólk á Eflingarlaunum að komast á húsnæðismarkað Bein útsending: Kanónur ræða sjávarútveginn í Hörpu Farþegum fjölgaði um 14 prósent í október Steinunn frá UNICEF til Festu Ætla í hart vegna ákvörðunar Fjarskiptastofu Sýn tapaði 239 milljónum Engin u-beygja vegna pillu forstjóra Icelandair Segja fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af stöðu efnahags og vinnumarkaðar „Óveðurský á lofti í ferðaþjónustu“ Engir sérfræðingar að verki og sá yngsti um tvítugt Fullyrðingar Sigurðar um minni verðbólgu standist ekki Bein útsending: Í hvað á orkan að fara? Sækja á fjórða milljarð króna Afreksíþróttamenn sendast með tvö þúsund matarskammta á dag Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Amaroq staðfestir merkilegan fund sjaldgæfra jarðmálma Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Sjá meira