Fótbolti

Alfreð: Gylfi býr yfir sjaldséðum gæðum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Alfreð og Gylfi fagna marki Alfreðs í gær.
Alfreð og Gylfi fagna marki Alfreðs í gær. vísir/vilhelm
„Við töluðum um að gera nákvæmlega ekki það sem að við svo gerðum sem var að reyna að verja þessa 2-0 forystu,“ segir Alfreð Finnbogason, framherji íslenska landsliðsins í fótbolta, um jafnteflið gegn Gana á Laugardalsvellinum í gærkvöldi.

Strákarnir okkar spiluðu frábærlega í fyrri hálfleik og voru verðskuldað 2-0 yfir en Ganverjar tóku yfir leikinn síðasta hálftímann, pressuðu okkar menn niður að teignum og uppskáru sanngjarnt jöfnunarmark.

„Við spiluðum svona oft á EM og þetta getur verið hættulegt. Þegar við framherjarnir erum að verjast á teig er erfitt að finna menn frammi og þá kemst aldrei neitt flæði í leikinn,“ segir Alfreð.

Eins og Alfreð bendir á var þetta oft leikmyndin á Evrópumótinu í Frakklandi fyrir tveimur árum en þá gekk allt upp og okkar menn hentu sér fyrir öll skot og Hannes varði allt annað þar til kom að Frakklandsleiknum fræga.

Svona leikstíl er erfitt að treysta á og tæpt að okkar menn geti látið pressa sig svona aftur að eigin marki í öllum leikjunum á HM þar sem að þeir mæta nokkrum af betri leikmönnum heims.

„Við treystum aðeins á lukkuna á EM og lágum til dæmis ansi aftarlega í leikjunum á móti Ungverjandi og Austurríki. Við vorum að kasta okkur fyrir allt og þá getur verið sentimetraspursmál hvort úr verði mark eða hornspyrna,“ segir Alfreð.

„Þetta er mjög eðlileg afleiða þess sem við vorum að gera í seinni hálfleik en ekki það sem að við ætluðum að gera. Við ætluðum að byrja pressuna framar og vera ákveðnari. ÞEtta er eitthvað sem búið er að ræða en við náðum ekki að útfæra.“

Gylfi sýndi geggjuð tilþrif í gær.vísir/vilhelm
Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliðinu í kvöld og var algjörlega magnaður en með hann í sínu besta standi, eða allt að því, inn á vellinum voru okkar menn miklu betri. Hann skapaði pláss fyrir alla, stýrði leiknum meistaralega og átti stóran þátt í báðum mörkunum.

„Fyrir mig sem framherja er algjör draumur að spila með Gylfa. Ég hef spilað með nokkrum leikmönnum eins og honum, þó ekki mörgum, þar sem að maður tekur eitthvað hlaup og boltinn kemur bara til manns. Maður þarf ekkert að teygja sig eða neitt. Gylfi er þannig leikmaður að hann sér þig án þess að sjá þig,“ segir Alfreð.

„Hann býr yfir ákveðinni ró og gæðum sem eru sjaldgæf hjá íslenskum leikmanni. Ég veit ekki hvort ég geti hreinlega hrósað honum mikið meira. Það vita allir hversu mikilvægur hann er fyrir okkur og það er algjör nauðsyn fyrir liðið að hann sé í standi. Hann leit vel út í leiknum og er búinn að líta vel út síðan að við byrjuðum að æfa.“

Alfreð fagnar sínu marki í gær.vísir/vilhelm
Strákarnir kvöddu þjóðina fyrir EM 2016 með 4-0 sigri á Lichtenstein. Þá var gaman í Laugardalnum og þó svo að mótherjinn hafi eki verið sá sterkasti var stemning eftir sigurinn og gaman fyrir liðið að kveðja þannig.

Eftir leikinn í gær var stemningin ekki mikil og sætin mörg hver orðin auð í stúkunni. Er þetta eitthvað sem Alfreð hugsaði um á leiðinni til búningsklefa eftir leik?

„Nei, ekki þannig. Ég er bara fyrst og fremst svekktur með frammistöðuna. Leikurinn átti að snúast um frammistöðuna og úrslitin áttu að fylgja. Það var leiðinlegt að geta ekki haldið þetta út í 90 mínútur því við verðum að geta haldið út á HM,“ segir Alfreð.

„Við verðum að geta haldið ákefðinni lengur og sett í sjötta gírinn. Ég hef fulla trú á því að við getum það en nú verður þetta spurningamerki yfir okkur sem þið getið rætt. Við náum samt alltaf að gíra okkur upp í mótsleikina þannig að ég er hvorki hræddur né smeykur,“ segir Alfreð Finnbogason.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×