Segir tillögur sínar ekki tengjast komandi kosningum Hersir Aron Ólafsson skrifar 15. maí 2018 20:00
Uppfært 21:15: Tillögu Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur um afturköllun á lóð undir mosku handa Félagi múslima var vísað frá á fundi borgarstjórnar í kvöld. Borgarfulltrúinn Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir segir tillögu sína um afturköllun á lóð Félags múslima ekki tengjast komandi kosningum. Hún vilji einfaldlega fylgja málinu eftir, enda sé félagið komið framyfir fresti til að byggja mosku. Sveinbjörg hyggst leggja tillöguna fyrir á síðasta borgarstjórnarfundi kjörtímabilsins í kvöld. Þar er lagt til að lóðaúthlutunin frá 2013 verði afturkölluð og farið verði í samtal við hagsmunafélög eldri borgara um uppbyggingu á lóðinni. Hún bendir á að ekkert bóli á byggingarframkvæmdum af hálfu félags múslima. „Maður spyr sig kannski hvort þeir hefðu sjálfir átt að segja bara við höfum ekki staðið við framkvæmdaskilmála og höfum ekki tryggt fjármögnun á henni, og þar af leiðandi þá skilum við henni,“ segir Sveinbjörg.Mælist með eitt prósent í skoðanakönnun Sveinbjörg býður nú fram fyrir nýjan lista, Borgina okkar Reykjavík. Framboðið mældist með fylgi upp á eitt prósent í skoðanakönnun Fréttablaðsins fyrir réttri viku síðan. Miðað við þá niðurstöðu á Sveinbjörg því langt í land með að halda í sæti sitt í ráðhúsinu.Er þetta svona síðasti séns til að veiða fylgi hjá þér?„Nei, ég held að í ár geti ég lagt fram þá vinnu sem ég hef unnið í minnihlutanum í sterkri stjórnarandstöðu við meirihlutann í borginni. Þetta er raunverulega bara það að ég er alin upp við það að klára það sem ég byrja á,“ svarar Sveinbjörg.Ræddi málið einnig fyrir síðustu kosningar Sveinbjörg viðraði svipaðar hugmyndir þegar hún bauð fram fyrir Framsókn og flugvallarvini 2014, þá á þeim forsendum að lagatúlkun borgaryfirvalda stæðist ekki skoðun. Þannig hefur borgin heimfært lagaskyldu sína til að leggja þjóðkirkjunni ókeypis lóðir undir kirkjur yfir á önnur trúfélög einnig á grundvelli jafnræðisreglu og taldi sér því skylt að veita Félagi múslima fría lóð undir mosku.Er þér í nöp við múslima?„Þetta er stór spurning. Ekki frekar en mér er í nöp við kristna. Innan hóps múslima, kristna, búddista, við erum öll mismunandi. En það er auðvitað þannig að í moskum er ekki bara tilbeiðsluhús, það er náttúrulega dómshús og svona uppfræðisetur, öfugt við kirkjuna.“
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Innlent Fleiri fréttir Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Sjá meira