Þorsteinn Víglundsson með 98,5% atkvæða í embætti varaformanns Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 11. mars 2018 19:45
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var í dag endurkjörin formaður Viðreisnar en hún hlaut 95,3% greiddra atkvæða á landsþingi flokksins sem fram fór um helgina. Þorsteinn Víglundsson, nýkjörinn varaformaður flokksins, lagði mikla áherslu samstarf við Evrópusambandið í þakkarræðu sinni á þinginu. Á annað hundrað manns sóttu landsþing Viðreisnar sem fram fór í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ um helgina en þetta er í fyrsta sinn sem landsþing flokksins fer fram eftir að hann fékk fyrst kjörna fulltrúa áþing. Íþakkarræðu sinni sagði Þorgerður Katrín stuðninginn í formannskjörinu verða henni veganesti og hvetja hana áfram við að„rugga bátnum” sem var einmitt yfirskrift landsþingsins. Þorsteinn Víglundsson hlaut örlítið betri kosningu en Þorgerður Katrín en hann hlaut 98,5% greiddra atkvæða í embætti varaformanns. Íþakkarræðu sinni lýsti hann yfir áhyggjum vegna uppgangs þjóðernispoppúlisma og sundrungar víða um heim. Evrópusambandið gegni lykilhlutverki þegar kemur aðþví að sporna viðþeirri þróun að sögn Þorsteins. „Evrópusambandið er ekki bara eitthvert viðskiptabandalag, Evrópusambandið er einmitt vitinn í heiminum fyrir frelsi, mannréttindum, félagslegu öryggi, efnahagslegum uppgangi og við vinnum saman sem álfa til þess að stuðla að friði,” sagði Þorsteinn. Sem flokkur eigi Viðreisn að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi, með Evrópusambandið að leiðarljósi, í baráttunni gegn stjórnmálamenningu sem ali á sundrung að mati Þorsteins. „Þess vegna viljum við leggja aukna áherslu á Evrópusambandsumræðuna, á Evrópuumræðuna, því að við segjum: „Þarna er vitinn,““ Sagði Þorsteinn.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Fleiri fréttir Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Sjá meira